16.1.2012 11:36
22. janúar: Messa og sunnudagaskóli kl. 11 og kvöldmessa kl. 20
Messa kl. 11 og sunnudagaskóli á sama tíma. Prestur er sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson og organisti Jörg Sondermann. Kirkjukórinn leiðir söng. Léttur hádegisverður á eftir. Fyrsta kvöldmessa ársins í Selfosskirkju verður svo kl. 20. Þar munu ungir piltar sem eru að feta sig áfram frægðarveginn í tónlistinni annast allan tónlistarflutning. Þetta eru þeir Alexander Olgeirsson á píanó og gítar sem jafnframt er söngvari, Sigurgeir Skafti Flosason á bassa og Skúli Gíslason á trommur. Eins og áður er áhersla lögð á létta og notalega stemningu í kvöldmessunum, flutt verður tónist í bland við ritningarorð, hugvekju og bæn. Prestur er sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson. Allir eru hjartanlega velkomnir. Sjáumst í kirkjunni!
Til baka