
Messa og sunnudagaskóli nk. sunnudag kl. 11:00. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson leiðir messuna og sr. Ninna Sif sunnudagaskólann. Kirkjukór Selfoss undir stjórn Jörgs Sondermann leiðir söng í messunni. Vænst er þátttöku fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Súpa, brauð og kaffisopi eftir messu.
Kyrrðarbæn
Alla mánudaga kl. 17:30 er kyrrðarbæn í Selfosskirkju. Byrjendum er ráðlagt að mæta 17:15. Kyrrðarbæn veitir tækifæri til djúprar slökunar og nándar við Guð.