1.9.2010 08:55
Upphaf vetrarstarfs: Fjölskylduhátíð og kvöldmessa 5. september
Fjölskylduhátíð kl. 11. Upphaf vetarstarfsins í kirkjunni. Félagar úr
barnakórum og unglingakór syngja ásamt kirkjukórnum. Emil og Ída úr Kattholti koma í heimsókn, mikill almennur söngur. Að guðsþjónustu lokinni verður opið
hús í safnaðarheimilinu á eftir þar sem fjölbreytt starfsemi kirkjunnar
verður kynnt. Léttar veitingar. Kvöldmessa með kirkjukórnum kl. 20.
Léttir sálmar, almennur söngur, einsöngur, hugvekja og bæn. Notaleg
samvera fyrir fólk á öllum aldri.
Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson þjónar í kvöldmessunni ásamt Eygló J. Gunnarsdóttur djákna. Organisti er Jörg Sondermann. Hefjum vetarstarfið af krafti - allir velkomnir!
Til baka