Júlía Sif Ragnarsdóttir bakaði vel skreytta köku
 




 
 
 




                     Unglingakór Selfosskirkju

Kórinn skipa nú 20 stúlkur á aldrinum 13-16 ára. Unglingakórinn hefur starfað frá árinu 1993 og er framhald af starfi Barnakórs Selfosskirkju sem Glúmur Gylfason, organisti stofnaði árið 1988. Unglingakórinn tekur þátt í helgihaldi kirkjunnar, með kórsöng og forsöng í messum og einnig einsöng við ýmsar athafnir. Sérstök áhersla er lögð á raddþjálfun og söngkennslu.
Kórinn heldur árlega sjálfstæða tónleika og hefur einnig flutt stór kirkjuleg verk með hljómsveitum ásamt Gradualekór Langholtskirkju og Unglingakór Hallgrímskirkju í Reykjavík. Tónleikaferðir innan- og utanlands eru einnig fastir liðir starfsins. Edinborg 1995, Danmörk 1998, 2000 var haldið til Ameríku, 2002 Barcelona, 2003 Danmerkur og 2006 til Þýskalands. Kórinn hefur sungið á Kirkjulistaviku á Akureyri, hann söng með Sinfóníuhljómsveit Íslands á jólatónleikum í desember 1999 og einn kórfélaga söng einsöng með hljómsveitinni. Kórinn söng einnig í jólaguðsþjónustu Sjónvarpsins á aðfangadagskvöld, þar sem Biskup Íslands prédikaði í Þingvallakirkju. Kórinn tók einnig þátt í hátíðahöldum á Þingvöllum í júlí, í tilefni 1000 ára kristnitökuafmælis, en þar var gert ráð fyrir 1000 syngjandi börnum.
Unglingakórinn gaf út geislaplötuna, Söngur í Selfosskirkju, í desember 1999 og söng einnig á jólaplötu til styrktar Hjálparstafi kirkjunnar, ásamt fleiri barnakórum. Í desember 2001 kom svo út annar geisladiskur undir stjórn Margréti Bóasdóttur. Núverandi stjórnandi Unglingakórsins er Edit Molnár.

                                       
 
 
 
                Kórinn kom fram  í Iðu með Páli Óskari og Móniku
 
 
 
 
  
                          Unglingakór í jólaboði Kvenfélags Selfosskirkju