Heilræði dagsins
Það góða sem þú gerir í dag, gleymir fólk oft á morgun: ~ Haltu áfram að gera góðverk, þrátt fyrir það.
Móðir Teresa


Guðspjöll
Jóhannesarguðspjall 1:48 
Natanael spyr: Hvaðan þekkir þú mig? Jesús svarar: Ég sá þig undir fíkjutrénu, áður en Filippus kallaði á þig.
                    Unglingakór Selfosskirkju í Salnum í Kópavogi
Kórinn kom fram á tónleikaröð "Franz Liszt í 200 ár"
Síðustu tónleikar í þeirri röð voru í Selfosskirkju 2. nóv. 2011
6.2.2012
MESSA OG SUNNUDAGASKÓLI NK. SUNNUDAG KL. 11:00

Messa og sunnudagaskóli nk. sunnudag kl. 11:00. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson leiðir messuna og sr. Ninna Sif sunnudagaskólann. Kirkjukór Selfoss undir stjórn Jörgs Sondermann leiðir söng í messunni. Vænst er þátttöku fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Súpa, brauð og kaffisopi eftir messu.

 

Kyrrðarbæn

Alla mánudaga kl. 17:30 er kyrrðarbæn í Selfosskirkju. Byrjendum er ráðlagt að mæta 17:15. Kyrrðarbæn veitir tækifæri til djúprar slökunar og nándar við Guð.
Lesa meira..


30.1.2012
5. febrúar: Fjölskylduguðsþjónusta, kökubasar og kvöldmessa kl. 20

Sunnudaginn 5. febrúar nk. verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa sr. Ninna Sif, sr. Óskar og Edit kórstjóri.  Yngri barnakór kirkjunnar syngur.  Æskulýðsfélag kirkjunnar stendur fyrir kökubasar á eftir en ágóðinn verður nýttur í ferðasjóð fyrir æskulýðsmótið í Vatnaskógi nú í febrúar.  Súpa og brauð að venju í safnaðarheimili á eftir.  Kvöldmessa kl. 20 með Ragnheiði Blöndal.  Þar mun söngkonan Ragnheiður Blöndal syngja þekktar dægurperlur við undirleik Jóns Ágústs Reynissonar.  Prestar eru sr. Ninna Sif og sr. Óskar.  Allir velkomnir!
Lesa meira..


28.1.2012
MESSA OG SUNNUDAGASKÓLI NK. SUNNUDAG KL. 11:00

Nk. sunnudag verður mesa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson leiðir messuna og æskulýðsleiðtogar stjórna sunnudagaskólanum. Kirkjukór Selfoss undir stjórn Jörgs Sondermann leiðir söng. Vænst er þátttöku fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Súpa og brauð eftir messu.
Lesa meira..


16.1.2012
22. janúar: Messa og sunnudagaskóli kl. 11 og kvöldmessa kl. 20

Messa kl. 11 og sunnudagaskóli á sama tíma.  Prestur er sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson og organisti Jörg Sondermann.  Kirkjukórinn leiðir söng.  Léttur hádegisverður á eftir.  Fyrsta kvöldmessa ársins í Selfosskirkju verður svo kl. 20.  Þar munu ungir piltar sem eru að feta sig áfram frægðarveginn í tónlistinni annast allan tónlistarflutning.  Þetta eru þeir Alexander Olgeirsson á píanó og gítar sem jafnframt er söngvari, Sigurgeir Skafti Flosason á bassa og Skúli Gíslason á trommur.  Eins og áður er áhersla lögð á létta og notalega stemningu í kvöldmessunum, flutt verður tónist í bland við ritningarorð, hugvekju og bæn.  Prestur er sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson.  Allir eru hjartanlega velkomnir.  Sjáumst í kirkjunni!

Lesa meira..


3.1.2012
Fyrsta messa ársins sunnudaginn 8. janúar

Fyrsta messa ársins 2012 verður sunnudaginn 8. janúar kl. 11.  Prestur er sr. Ninna Sif Svavarsdóttir.  Organistir er Jörg Sondermann og Kirkjukórinn leiðir sönginn.  Súpa og brauð í safnaðarheimili á eftir.  Allir velkomnir!
Lesa meira..