Vorferð Kirkjukórs Selfosskirkju 2.júní 2012

Nú er enn ein gleðin framundan og komið að árlegri vorferð kirkjukórsins. Farið verður með rútu frá Selfosskirkju laugardaginn 2. júní 2012 kl. 13.00, stundvíslega.

Við munum aka Suðurstrandarveginn og skoða okkur um á leiðinni á vel völdum stöðum.

Leiðin mun svo liggja til Grindavíkur, þar sem okkur gefst kostur á að skoða fiskvinnslufyrirtækið Stakkavík og væntanlega fleiri áhugaverða staði enda margt að sjá á þessum slóðum.

Við munum svo borða saman á Salthúsinu þar sem okkar bíður hlaðborð með eftirtöldum kræsingum:

Kjúklingur í karrý kókós, fiskgratin, núðluréttur, lambapottréttur, hrísgrjón, salat og snittubrauð.

Það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi J

Að vanda verður seldur „kaldur“ á rúmlega kostnaðarverði í rútunni og etv. óvæntur drykkur einhversstaðar á leiðinni. En að sjálfsögðu mega allir hafa sín drykkjarföng meðferðis, eins og vilji er til.

Kostnaður í ferðina er aðeins kr.3500.- á mann.

Ferða- og skemmtinefnd.

 
 
 
 
 
 
 
Sett inn 22. apríl 2012
Raddæfing þriðjudaginn 24. apríl.  Æfingin verður í Tónlistrskólanum.  Konur mæta 19:30 og karlar 20:30.