
Fundur sóknarnefndar 14. maí 2009 haldinn í skrifstofu sóknarprests
hófst kl. 18:30
1. Eysteinn formaður setti fund og gaf Herdísi Styrkársdóttur æskulýðsfulltrúa orðið. Herdís sagði frá því að áhugi væri fyrir því að halda sumarnámskeið fyrir börn á vegum kirkjunnar. Þetta gætu verið milli 20 og 30 börn í 1. – 3. bekk í ca. 2 vikur í lok júnímánaðar. Herdís myndi standa fyrir þessu námskeiði með 1 – 2 aðstoðarmönnum (eða einum aðstoðarmanni og svo starfsmönnum frá vinnuskóla bæjarins ef um það gæti samist. Innsk. EÓJ.). Samþykkt samhljóða að fela Herdísi að halda námskeiðið.
2. Edit Molnár sagði frá starfi barna og unglingakóranna, en rúmlega 80 eru nú í kórunum.
3. Jörg Sonndermann sagði frá starfi kirkjukórsins.
4. Eysteinn ræddi um hvort sóknarnefnd og starfsfólk gæti komið saman í lok vetrar, t.d. í safnaðarheimili kirkjunnar. Einnig var rætt um sameiginlega máltíð annarsstaðar. (Gunnþóri og Birni Inga falið að kanna hvenær best hentaði að fara í slíkt. Innsk. EÓJ.)
5. Samþykkt var að fela formanni að óska eftir því við biskup Íslands að sr. Óskar H. Óskarsson gegni starfi sóknarprests áfram um tíma.
6. Lögð fram greinargerð frá Landform ehf. um framtíðarkirkjugarð í Mógili – utan Ölfusár ca. 10 ha. svæði, sem bæjaryfirvöld hyggjast auglýsa við næstu aðalskipulagsbreytingu.
Fundi slitið kl. 20:02
Undirritaðir auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Guðmundur Búason, Friðsemd Eiríksdóttir, Björn Ingi Gíslason, Gunnþór Gíslason, Þórður Stefánsson og Sigríður Bergsteinsdóttir. Áður höfðu yfirgefið fundinn: Herdís Styrkársdóttir, Edit Molnár og Jörg Sondermann.
Fundur sóknarnefndar 20. júlí í skrifstofu sóknarprests. Hófst kl. 19:30
1. Eysteinn formaður setti fund og Sigurjón las fundargerð síðasta fundar.
2. Guðm. Búason sagði frá gangi mála hjá byggingarnefnd en Umhverfis og skipulagsnefnd Árborgar hefir nú samþykkt að deiliskipulagstillaga að lóð kirkjunnar verði sett í auglýsingu, en auglýsingatími er 4 vikur og athugasemdartími síðan 2 vikur.
3. Anne B. Hansen lagði fram og skýrði uppdrátt að viðbyggingu milli kirkjuturns og safnaðarheimilis dags. 29. júní ´09, en í tillögunni eru einnig sýndar fyrirhugaðar breytingar innanhúss í safnaðarheimili, skrifstofuhluta og kirkju. Ýmsar fyrirspurnir komu frá fundarfólki, en þau Anne og Guðmundur skýrðu þau atriði sem um var spurt.
Eysteinn þakkaði Anne fyrir sína vinnu og vék hún af fundi.
4. Ráðning æskulýðsfulltrúa. Sr. Óskar H. Óskarsson sagði frá 6 umsóknum um starfið. Þessir sóttu:
1. Ninna Sif Svavarsdóttir guðfræðingur.
2. Unnar Reynisson. Tómstunda- og fél. málafr. próf 3 ár frá KHÍ.
3. Sjöfn Þórarinsdóttir. Nám í sálfræði við H.Í. 2 ár.
4. Gunnar Kristinn Þórðarson. B.A. í guðfræði frá H.Í. í 3 ár.
5. Kristrún Helga Marinósdóttir. Nám í félagsfræði við H.Í. í 2 ár.
6. Guðmundur Brynjólfsson. Djáknapróf frá H.Í. í 3 ár. M.A. próf 5 ár í bókmenntafræði frá H.Í. og University of London.
Sr. Óskar hefir farið yfir þessar umsóknir ásamt sr. Eiríki Jóhannssyni (prófasti) og Eygló djákna. Fyrir lá tillaga frá þeim um að Ninna Sif Svavarsdóttir yrði ráðin í starfið til eins árs, með 60% á Selfossi og 40% í prófastdæminu utan Selfoss. „Tillagan samþykkt samhljóða“.
5. Eysteinn kynnti bréf frá Hótel Selfoss / Ásbjörn Jónsson hótelstjóri, þar sem óskað er þátttöku Selfosskirkju í malbikun á lóð norðan við hótelið. Lagt er til að Selfosskirkja greiði ca. 360m2 af malbiki á 23 bílastæði. „Eysteini falið að ræða þetta frekar við Ásbjörn hótelstjóra.“
6. Sigurjón lagði fram tilboð frá Drífanda ehf. í hellulögn á gangstígunum norður eftir kirkjugarðinum, 96m2 ásamt steyptum kantsteini. Tilboðið er dagsett 22. júní 2009 og er kr. 688.400, efni og vinna. „Samþykkt samhljóða“.
7. Sigurjón lagði fram og dreifði „Úttekt v. lóðarframkvæmda við Selfosskirkju“ dags. 3/7 2009, þ.e. nýi kirkjugarðurinn. Verktakinn Drífandi ehf. lauk verkinu um 25. júní sl. fyrir utan smá frágang.
8. Eysteinn lýsti sérstakri ánægju með útimessu þá sem fram fór sl. sunndagsvöld 19. þ.m. í bakgarði kirkjunnar. Eftir messu gengu kirkjugestir út í nýja kirkjugarðinn þar sem Sigurjón Erlingsson sagði frá framkvæmdum. Boðið var síðan upp á kaffisopa í safnaðarheimili, sr. Óskar messaði.
9. Sr. Óskar H. Óskarsson ræddi um sína stöðu við Selfosskirkju. Hann hyggst óska eftir launalausu leyfi frá Akureyrarkirkju til næstu áramóta og starfar því áfram á Selfossi um sinn. Sóknarnefnd veitir sr. Óskari fyllsta traust sitt til áframhaldandi starfa.
Fundi slitið kl. 22:17.
Eftirtaldir undirrituðu fundargerðina: Óskar Hafsteinn Óskarsson, Eystein Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Gunnþór Gíslason, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Jörg E. Sondermann, Þórarinn Stefánsson, Sigríður Bergsteinsdóttir og fundarritarinn Sigurjón Erlingsson.
Einnig sat Eygló J. Gunnarsdóttir djákni fundinn en þurfti að hverfa af fundi áður en honum var slitið. E.Ó.J.
Fundur sóknarnefndar 10. sept. 2009 í skrifstofu sóknarprests. Hófst kl. 18:15
Eysteinn formaður setti fund.
1. Eygló Gunnarsdóttir djákni lagði fram áætlun: „Kirkjustarf í Selfosskirkju á haustmisseri 2009 – drög. Þar kemur fram áætlun um messur, fjölskylduguðsþjónustur, sunnudagaskóla, barna- og æskulýðsstarf, fermingarstörfin, kórastarf, tónleika og aðra starfsemi. Áætlunin er unnin af starfsfólki og settum sóknarpresti.
Ninna Sif Svavarsdóttir nýráðinn æskulýðsfulltrúi sagði frá byrjun í sínu starfi, en hún hóf störf um síðustu mánaðarmót. Edith Molnár kórstjóri sagði frá sínu starfi, en um 90 börn og unglingar eru nú í 3 kórum.
Jörg Sondermann organisti sagði frá ýmsu í sínu starfi.
Sr. Óskar H. Óskarsson ræddi um þá áætlun um starfið, sem áður er nefnd og þakkaði samstarfsfólki fyrir góða samvinnu.
2. Gunnþór kirkjuvörður kynnti „bókunarskrá“ sem tekin verði upp í Selfosskirkju eftirleiðis. Í hana verða færðar allar athafnir sem framundan eru í hverjum mánuði.
3. Björn Gíslason kynnti útkomu fréttabréfs um næstu mán. mót.
4. Sr. Óskar óskaði eftir að áform yrði haldið að styrkja fermingarbörn við kaup á fermingarkveri. Þá var samþykkt að greiða kostnað við komu Ellenar Kristjánsdóttur söngkonu sem væntanleg er í október nk. til söngs við messu. Hvorutveggja samþ. samhljóða.
5. Sr. Óskar setti fram hugmynd um að stofnaður yrði menningarsjóður Selfosskirkju.
6. Björn Gíslason sagði frá fundi með formönnum sóknarnefnda í Árnesprófastdæmi, með prófasti og nýráðnum æskulýðsfulltrúa. Fundurinn var á Borg í Grímsnesi 3. sept. sl.
7. Eysteinn form. sagði frá för sinni með Sigurði Sigurjónssyni lögmanni til biskups, en þeir hittu hann í morgun. Eysteinn dreifði á fundinum plaggi sem þeir lögðu fyrir biskup og hefir, yfirskriftina: „Hugleiðingar um næstu skref vegna prestamála í Selfosskirkju“. Þar kemur fram samantekt á því helsta sem gerst hefur í þessu máli á sl. 16 mánuðum.
Úrskurður frá úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar um mál sr. Gunnars Björnssonar kom 3. sept. sl. Áfríunarfrestur er 3 vikur þar frá.
Sóknarnefnd staðfestir áðurnefnda framlagða „Hugleiðingu um næstu skref vegna prestamála í Selfosskirkju“ og lýsir fyllsta stuðningi við það sem þar kemur fram. Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 19:40 en Eygló Jóna, Ninna Sif, Jörg og Edith Molnár yfirgáfu fundinn eftir sínar kynningar í 1. lið, en aðrir undirrituðu fundargerð: Eysteinn Ó. Jónasson, Óskar Hafsteinn Óskarsson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Gunnþór Gíslason, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Þórður Stefánsson, Sigríður Bergsteinsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
Fundur sóknarnefndar 20. sept. 2009 kl. 12:30
Eysteinn setti fund og las fundargerð síðasta fundar. Kynnti efni síðasta fundar fyrir sr. Eiríki Jóhannssyni prófasti.
Prófastur og sr. Óskar H. Óskarsson sáu um messu í dag. Prófastur sagði frá fyrirhuguðu námskeiði fyrir sóknarnefndarfólk.
Mál kirkjunnar rædd.
Fundi slitið kl. 13:00 Auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar sátu fundinn:
Óskar Hafsteinn Óskarsson, Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Eiríkur Jóhannsson, Jörg E. Sondermann, Eygló Jóna Gunnarsdóttir og Sigríður Bergsteinsdóttir.
Fundur sóknarnefndar 18. okt. 2009 að aflokinni messu. Hófst kl. 12:30
1. Eysteinn Jónasson formaður setti fund og fagnaði því að nú liggur fyrir ákvörðun biskups að færa sr. Gunnar Björnsson úr starfi sóknarprests á Selfossi í sérverkefni hjá Biskupsstofu. Fær hann þá starfsheitið sérþjónustuprestur.
2. Lagt fram bréf frá kirkjuráði dags. 16. okt. 2009 þar sem kynnt er tillaga: „Hraungerðis- og Selfossprestaköll Árnesprófastdæmi sameinist. Hið nýja prestakall nefnist Selfossprestakall. Prestakallinu verði þjónað af sóknarpresti og presti“.
Í bréfinu er óskað eftir því að málið verði kynnt á aukahéraðsfundi (að kveldi 20. okt. nk. innsk. EÓJ) og umsögn skilað til biskupafundar fyrir 20. okt. nk.
Að loknum umræðum var eftirfarandi ályktun samþykkt: Sóknarnefnd telur afar brýnt að embætti sóknarprests í Selfossprestakalli verði auglýst hið fyrsta. Sóknarnefnd ítrekar mikilvægi þess að Selfosssöfnuður fái sem fyrst að velja sér nýjan prest til að hefja uppbyggingu í söfnuðinum og skapa traust. Aðeins á þeim grunni verður hægt að hefja umræður um mögulega sameiningu prestakallsins síðar meir. Samþ. samhljóða.
Eysteini og sr. Óskari falið að fylgja þessari samþykkt eftir á héraðsfundi.
3. Lagðar fram 8. 9. og 10. fundargerð byggingarnefndar Selfosskirkju. Í framhaldi af því lagði Guðmundur Búason fram þá tillögu bygg. nefndar að byggingaframkvæmdum verði frestað um sinn – Samþykkt samhljóða.
4. Lögð fram „Lokaúttekt“ lóðarframkvæmda við Selfosskirkjugarð sem fram fór 2. október 2009. Verksamningur við Drífanda ehf. var uppá 17.625.150,-kr.
Aukaverk og magnaukning var 1.786.083,-kr. eða um 10% af heildarverki.
5. Hjörtur Þórarinsson kynnti aðventutónleika í Selfosskirkju 6. des. nk. og lagði fram dagskrá tónleikanna.
Fundi slitið kl. 14:20 en þá hafði Sigríður Bergsteinsdóttir yfirgefið fundinn vegna útkalls svo og sr. Óskar H. Óskarsson. Eftirfarandi undirrituðu fundargerð.:
Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Þórður Stefánsson, Hjörtur Þórarinsson og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
Fundur sóknarnefndar í skrifstofu sóknarprests 4. nóv. 2009 Hófst kl. 18:15
Eysteinn formaður setti fund.
1. Eysteinn kynnti bréf frá biskupsembættinu þar sem kynnt eru drög að auglýsingu um embætti sóknarprests í Selfossprestakalli en auglýsingin hefir þegar verið send Lögbirtingablaðinu og mun nú birtast í blöðum. Starfið verður veitt frá 1. febr. 2010. Umsóknarfrestur rennur út 14. des. 2009. Undir bréfið ritar Ragnhildur Benediktsdóttir fh. biskups.
2. Eysteinn kynnti bréf frá Óskari H. Ólafssyni Dælengi 2 þar sem hann óskar eftir að víkja sæti úr valnefnd prestakallsins.
3. Sr. Óskar H. Óskarsson sagði að fréttabréf kirkjunnar komi út í næstu viku. Þá sagði hann frá því að fermingarfræðsla stæði nú yfir. Þá sagði hann frá því að ágóði af fyrirhuguðum aðventutónleikum myndi að ¾ hlutum fara í sjóðinn sem er samstarfsverkefni kirkjunnar og Rauða krossins, en ¼ hluti færi í hjálparsjóð Selfosskirkju. Samþykkt samhljóða.
4. Samþ. að leggja 1% af tekjum kirkjunnar í áðurnefndan hjálparsjóð (óháð lið 3) sbr. samþ. frá 18. nóv. 2008 lið 10. Áætlað er að þessi upphæð sé nú 400 – 500 þús. kr. og jafnhá upphæð í hjálparstarf kirkjunnar.
5. Gunnþór Gíslason kirkjuvörður lagði til að gjaldið fyrir ljósakrossa í kirkjugarði hækki til samræmis við raunkostnað. Samþ. samhljóða.
6. Samþ. að gjald fyrir leigu á kirkjunni t.d. til tónleikahalds verði kr. 15.000,- eins og verið hefir að undanförnu, eða sem næst fyrir útlögðum kostnaði við þrif ofl.
7. Gunnþór sagði frá ýmsum framkvæmdaratriðum við rekstur kirkju og kirkjugarðs.
8. Jörg Sondermann organisti fékk heimild til að fá tilboð frá Björgvin Tómassyni orgelsmið í viðgerð á hljómborði pípuorgelsins.
9. Samþ. að auka starfshlutfall Eyglóar Gunnarsdóttur djákna úr 85% í 100% frá 1. nóv.
10. Erla Kristjánsdóttir kynnti tillögu að minningarkortum sem gefin yrðu út af Selfosskirkju. Teikning Sólrún Guðjónsdóttir. Samþ. að fela Erlu að semja við Prentnet um prentun en tilboð liggur fyrir frá fyrirtækinu.
Fundi slitið kl. 19:38 en eftirtaldir undirrituðu fundargerð.
Fundur sóknarnefndar 8. nóv. 2009 í skrifstofu sóknarprests Hófst kl. 17:00
Eysteinn formaður sagði frá því að vegna frétta af Kirkjuþingi sem nú stendur yfir þar sem fram er komin tillaga frá sr. Kristjáni Björnssyni um sameiningu Selfoss- og Hraungerðisprestakalls, en sú frétt barst sóknarnefndarmönnum í gærkvöldi 7. nóv., þá ákváðu Eysteinn Jónasson, Guðmundur Búason og sigurjón Erlingsson að fara á Kirkjuþing um hádegi í dag að ítreka ósk sóknarnefndar um kosningu sóknarprests nú. Eftirfarandi áskorun var samþykkt á fundi sóknarnefndar (birt eins og bréf til Kirkjuþings var orðað. EÓJ.):
Áskorun til kirkjuþings 2009.
„Fundur sóknarnefndar Selfosskirkju 8. nóv. 2009 skorar á Kirkjuþing að hafna framkominni breytingartillögu um sameiningu Hraungerðis- og Selfossprestakalla.“
Samþ. samhljóða.
Fundur sóknarnefndar 8. nóv. 2009 ítrekar samþykkt sína frá 18. okt. sl. um „..að embætti sóknarprests í Selfossprestakalli verði auglýst hið fyrsta. Sóknarnefnd ítrekar mikilvægi þess að Selfosssöfnuður fái sem fyrst að velja sér nýjan sóknarprest til að hefja uppbyggingu í söfnuðinum og skapa traust.“
Í fjölmiðlum og samfélaginu á Selfossi var öllum orðið ljóst að embættið yrði auglýst, nýr sóknarprestur yrði valinn fyrir jól og skipaður frá 1. febrúar 2010.
Eftir tæplega tveggja ára erfiðleika- og óvissutímabil í Selfosssókn væri einstaklega óheppilegt að knýja söfnuðinn í sameiningu prestakalla á þessum viðkvæma tímapunkti. Gríðarlega þýðingarmikið er að Kirkjuþing 2009 leggi ekki stein í götu þess auglýsingaferils, sem farinn var af stað af hálfu biskupsembættisins og er fyrsta skrefið til að skapa sátt í söfnuðinum og byggja upp traust að nýju.
Sóknarnefnd lýsir þeim vilja sínum að á þessum grunni verði hægt að hefja umræður um breytta skipan prestakalla.
Fundi slitið kl. 18:45
Fundarritari Sigurjón Erlingsson
Þessir sátu fundinn.:
Sigurjón Erlingsson, Eysteinn Ó. Jónasson, Hjörtur Þórarinsson, Björn Ingi Gíslason, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Guðmundur Búason, Sigríður Bergsteinsdóttir og Þórður Stefánsson.
Fundur sóknarnefndar 15. nóv. 2009 í skrifstofu sóknarprests að aflokinni messu. Hófst kl. 12:35 í skrifstofu sóknarprests.
Eysteinn formaður setti fund og ræddi ásamt sóknarnefndarfólki stöðu mála eftir kirkjuþing.
Á nýafstöðnu kirkjuþingi var samþykkt sameining 8 prestakalla þar á meðal eftirfarandi tillaga: „Selfoss- og Hraungerðisprestaköll Árnesprófastdæmi sameinist, tveir prestar þjóni prestakallinu, sóknarprestur og prestur. Prestsetur verða ekki í hinu nýja prestakalli“.
Ákvæði til bráðabirgða um að þessi sameining taki ekki gildi fyrr en 1. júlí 2010 var fellt með 11 atkv. gegn 10. Í fréttum er nú fullyrt að þessi niðurstaða þýði að sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson verði sóknarprestur í þessu sameinaða prestakalli, en auglýst verði eftir presti sem starfi með sr. Kristni og undir hans stjórn.
Samþykkt sóknarnefndarfundar 15. nóvember 2009:
„Í ljósi frétta sem birst hafa í fjölmiðlum um að fyrirhugað sé að Hraungerðisprestur verði sóknarprestur í sameinuðu prestakalli – Selfossprestakalli, óskar sóknarnefnd eftir um, við hvaða reglur verður stuðst ef það er ætlun kirkjuyfirvalda að svo verði“.
„Sóknarnefnd ítrekar enn og aftur þann eindregna vilja sinn sem fyrir lá á Kirkjuþingi, að sóknarfólk á Selfossi fái að velja sér sóknarprest áður en sameining tekur gildi.“
Samþykkt samhljóða.
Fundinn sátu Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Hjörtur Þórarinsson, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Þórarinn Stefánsson, Sigríður Bergsteinsdóttir auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar.
Sr. Óskar H. Óskarsson sat fyrri hluta fundarins, en fundi var litið kl. 13:45 .
Fundur sóknarnefndar 6. des. 2009 að lokinni messu
Haldinn í skrifstofu sóknarprests. Hófst kl. 12:30.
1. Eysteinn Ó. Jónasson form. setti fundinn. Fundarefni er að ganga frá bréfi frá sóknarnefnd til fundar kirkjuráðs sem verður 10. des. nk. þar sem fjallað verður um málefni Selfosskirkju og kosningu sóknarprests eða prests. Eysteinn kynnti hugmyndir að bréfi frá fundinum. Rætt var um texta bréfsins, sem samþykktur var og verður bréfið fært í fundargerðabók næst á eftir þessari fundargerð.
Fundi slitið kl. 13:15 og undir hana rituðu: María Kjartansdóttir, Eysteinn Ó. Jónasson, Friðsemd Eiríksdóttir, Þórður Stefánsson, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Sigríður Bergsteinsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
Fundur sóknarnefndar sunnud. 13. des. 2009 haldinn í skrifstofu sóknarprests.
Hófst kl. 12:10
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund. Fundarefni er niðurstaða fundar kirkjuráðs 10. – 11. des. sl. Fréttatilkynning þess fundar fer hér á eftir:
Fréttatilkynning
„Á fundi kirkjuráðs 10. og 11. desember var rætt um breytta prestakallaskipan sem samþykkt var á kirkjuþingi 2009 m.a. hvað varðar Selfossprestakall.
Fyrir fundinum lágu ályktanir sóknarnefndar Selfosskirkju, kirkjukórs, bréf einstaklinga og undirskriftir 1800 sóknarbarna sem krefjast þess að embætti sóknarprests verði auglýst og efnt til almennra kosninga.
Kirkjuþing 2009 samþykkti starfsreglur um að sameina Hraungerðisprestakall og Selfossprestakall í eitt prestakall. Starfsreglur kirkjuþings eru bindandi og því er ekki unnt að verða við ósk sóknarbarna um að auglýsa embætti sóknarprests og almenna kosningu. Við sameininguna fækkaði prestaköllum um eitt þannig að nýtt prestakall varð ekki til og af þeim sökum hvorki skylt né heimilt að auglýsa embætti sóknarprests. Sóknarprestur Hraungerðisprestakalls er því sóknarprestur í hinu sameinaða prestakalli.
Biskup Íslands hefur ákveðið að auglýsa eftir presti til starfa í Selfossprestakalli með sérstakar skyldur við Selfosskirkju. Samkvæmt starfsreglum kirkjuþings geta sóknarbörn óskað eftir almennri kosningu um embætti prests innan tveggja vikna frá því að auglýsing birtist. Ella mun valnefnd prestakallsins velja prestinn.“
Eftir umræður á fundinum var samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Ályktun sóknarnefndar Selfosskirkju 13. des. 2009. Sóknarnefnd lýsir vonbrigðum yfir þeirri niðurstöðu kirkjuráðs frá 10. og 11. desember s.l. þar sem hafnað er þeirri kröfu sóknarfólks að fá að velja sér sóknarprest í almennri prestkosningu. Með því staðfestir kirkjuráð þá ákvörðun kirkjuþings að taka hagsmuni embættismannsins fram yfir vilja sóknarfólks hjá kirkju sem heitir þjóðkirkja. Hins vegar lítur sóknarnefnd svo á að með því að biskup Íslands hefir ákveðið að auglýsa eftir presti til starfa í Selfossprestakalli „með sérstakar skyldur við Selfosskirkju“- sé stigið skref til móts við söfnuðinn. Sóknarnefnd álítur að þar verði valinn prestur, sem hafa muni afgerandi stöðu og starfssvið við Selfosskirkju. Mun sóknarnefnd beita sér fyrir því af fullum þunga að fylgja því eftir við kirkjuyfirvöld að svo verði, enda liggja fyrir eindregnar kröfur í þá átt frá ríflega 1800 sóknarmönnum auk krafna sóknarnefndar og kirkjukórs, bréfa einstaklinga og greinaskrifa í blöðum. Sóknarnefnd telur að með samstarfsvilja þeirra aðila sem málið varðar, kunni að fást viðunandi niðurstaða“.
Samþykkt samhljóða.
Þá var ennfremur lögð fram eftirfarandi ályktun sem samþykkt var samhljóða. :
„Fundur í sóknarnefnd Selfosskirkju 13. desember 2009 krefst þess að tímabundin ráðning sr4. Óskars H. Óskarssonar verði framlengd til 1. mars 2010 – eða þar til nýr prestur hefur verið skipaður við Selfosskirkju“.
Fundi slitið kl. 13:10 og undir fundargerð skráðu sig: Sigurður Sigurjónsson, Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Björn Gíslason, Guðmundur Búason, Sigríður Bergsteinsdóttir, Erla Rúna Kristjánsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
Fundur sóknarnefndar 14. desember 2009 í skrifstofu sóknarprests,
hófst kl. 17.
Gestir fundarins eru Ragnhildur Benediktsdóttir og Þorvaldur Karl Helgason.
Eysteinn Ó. Jónasson formaður setti fund. Fyrst var rætt um tillögu að auglýsingu prests sem sóknarnefnd hafði fengið í hendur. Samkomulag var um endanlega gerð auglýsingar og falli þar út nokkur orð og verði setningin þannig: „Embætti prests hefir sérstakar skyldur við Selfosskirkju.“
Miklar umræður voru um stöðu mála nú og komu fram skýrar kröfur sóknarnefndarmanna um að sá prestur sem kosinn (valinn) verður hafi forræði yfir Selfosskirkju.
Ragnhildi og Þorvaldi voru afhentar þær samþykktir sem gerðar voru á fundi sóknarnefndar í gær og eru skráðar í síðustu fundargerð.
Undir þetta skrifuðu: Þórður Stefánsson, Hjörtur Þórarinsson, Erla Rúna Kristjánsdóttir, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Sigurður Sigurjónsson, Eysteinn Ó. Jónasson og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
Fundur sóknarnefndar fimmtud. 7. jan. 2010 í skrifstofu sóknarprests.
Hófst kl. 18:10 .
Eysteinn Jónasson form. setti fund.
1. Sr. Óskar H. Óskarsson lagði fram „Starfsáætlun á vormisseri 2010“ sem samþykkt var á starfsmannafundi 5. janúar 2010 . Áætlunin nær til 23. maí nk. sem er hvítasunna. Farið var yfir áætlunina með sr. Óskari. Eftir umræður þar sem sóknarnefnd lýsti ánægju með hana, var áætlunin samþykkt samhljóða.
2. Sr. Óskar H. Óskarsson lagði fram bréf dags. 7. jan. 2010, sem hann hefir ritað sóknarnefnd um hlutverk sitt og skyldur í Selfosskirkju á tímabilinu frá 1. jan. – 28. febr. 2010, skv. umboði frá biskupi. Þvínæst vék sr. Óskar af fundi.
3. Eysteinn lagði fram „Viðhaldsóskir 2010“ frá Gunnþóri Gíslasyni kirkjuverði. Þarna eru 12 viðhaldsliðir úti og inni. Ákvörðun frestað.
4. Rætt var um að halda almennan safnaðarfund sunnud. 24. jan. nk. þar sem á dagskrá verði staða mála í Selfosssókn. Formanni falið að undirbúa dagskrá í samráði við sóknarnefnd. „Samþykkt samhljóða.“
5. Ákveðinn er fundur sóknarnefndar með sr. Kristni Ág. Friðfinnssyni nk. laugardag kl. 16:00.
6. Lögð fram kvittun frá Birni Pálssyni fh. Héraðsskjalasafns Árn. fyrir móttöku skjala frá Selfosskirkju, sem ná allt frá tíð sr. Sigurðar Pálssonar.
Fundi slitið kl. 19:50 . Undir fundargerð skráðu : Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Sigríður Bergsteinsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
Fundur sóknarnefndar laugardag 9. jan. 2010 haldinn í skrifstofu sóknarprests. Hófs kl. 16:00
Formaður Eysteinn Jónasson form. setti fund og bauð velkominn sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson.
Eysteinn rakti nokkur atriði um stöðu mála frá því að kirkjuþing ákvað sameiningu prestakallanna tveggja, Hraungerðis- og Selfossprestakalls.
Sr. Kristinn kvaðst fagna því að taka við þessu starfi sóknarprests í sameinuðu prestakalli. Þá sagði hann frá starfsferli sínum og fleiru í sínu starfi svo sem sálgæslu. Guðmundur Búason ræddi um þá kröfu að sá prestur, sem nú verður valinn stýri Selfosskirkju og telur að það felist í auglýsingunni. Sigurjón Erlingsson tók undir þá kröfu og lýsti því að sóknarnefnd myndi koma að gerð væntanlegs samstarfssamnings á síðari stigum.
Björn Gíslason taldi að samstarfssamningur þyrfti að vera um stjórn væntanlegs prests í Selfosskirkju.
Sr. Kristinn lýsti því yfir að hann vildi að væntanlegur samningur yrði þannig að „allir gætu vel við unað“.
Sigurður Sigurjónsson taldi að gott væri ef hægt væri að undirbúa gerð samstarfssamnings sem fyrst ekki síst vegna þeirra orða í auglýsingu um starf væntanlegs prests sem á að hafa „sérstakar skyldur við Selfosskirkju“.
Sigríður Bergsteinsdóttir lýsti þeirri skoðun að þessar sérstöku aðstæður kölluðu á sértækar aðgerðir.
Fundi slitið kl. 17:30 og eftirtaldir skrifuðu undir fundargerð:
Kristinn Ágúst Friðfinnsson, Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Sigurður Sigurjónsson, Hjörtur Þórarinsson, Sigríður Bergsteinsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
Almennur safnaðarfundur haldinn í safnaðarheimili Selfosskirkju sunnudaginn 24. janúar 2010 að aflokinni messu. Fundurinn hófst kl. 12:30 .
1. Formaður sóknarnefndar Eysteinn Ó. Jónasson setti fund en til hans var boðað beiðni fjölmargra sóknarbarna til að ræða stöðu mála eftir að ákveðin var á Kirkjuþingi þann 12. nóv. sl. sameining Hraungerðis- og Selfossprestakalla.
Eysteinn tilnefndi Berg Pálsson (fyrrum bónda í Hólma hjáleigu) fundarstjóra og Sigurjón Erlingsson fundarritara. Síðan hafði Eysteinn framsögu um gang mála varðandi sameininguna og greindi frá ýmsum samskiptum sóknarnefndar, samþykktum og samráðsfundum og er margt um það bókað í síðustu fundargerðum sóknarnefndar.
2. Sr. Úlfar Guðmundsson fyrrv. prófastur ræddi um sameininguna og að hún hefði borið brátt að. Hann sagði síðan frá ýmsum sameiningum prestakalla sem samþykktar voru á síðasta kirkjuþingi og skýrði þær leiðir sem í boði eru nú um val á prestum.
3. Jóhann Bjarnason ræddi um þær undirskriftir sem safnað var. Hann sagði að þetta mál snérist ekki um einhverja einstaklinga og það gengi ekki að ganga freklega á rétt fólks.
4. Sigurjón Erlingsson ræddi um það sem framundan er á næstu vikum. Umsóknarfrestur um prestsembættið í Selfosssókn rennur út á morgun 25. janúar. Þá velur valnefnd prestinn. Síðan gera sóknarprestur og prestur samstarfssamning sem fer til prófasts og sóknarnefndar og síðan til biskups sem gerir erindisbréf. Hann benti síðan á það sem stendur í 43. gr. starfsregla um presta um verkaskipti, en þar segir m.a.: „Við verkaskipti skal taka af því mið:
C) hvernig starf var auglýst og kynnt.....
G) sérstökum atvikum eða aðstæðum í prestakalli ef því er að skipta, sem gera nauðsynlegt að grípa til sérstakra eða óvenjulegra ráðstafana.“
Þar sem í auglýsingu um prestsembættið er fram tekið að hann skuli hafa sérstaka skyldur við Selfosskirkju væri hér góð leið til að presturinn stýrði öllu kirkjustarfi þar.
5. Sigmundur Sigurgeirsson spurði hvort ekki hefði borist til sóknarnefndar erindi um sameiningar prestakalla. Eysteinn sagði frá gangi þeirra mála og samskiptum við kirkjuyfirvöld og benti honum á að hann hefði ýtarlega greint frá þeim í framsöguræðu sinni. Þá spurði Sigmundur um hvort sr. Kristni hefði verið sendar hugmyndir að samstarfssamningi prestanna fyrirfram. Eysteinn kvað svo ekki vera, enda hafa engar slíkar hugmyndir verið ræddar eða samþykktar af sóknarnefnd. Hann kastaði um leið fyrirspurn til sr. Kristins Á. Friðfinnssonar um það hvort honum hefði borist slíkt frá sóknarnefnd. Sr. Kristinn kvaðst ekki vilja svara því strax, en svara því í lok fundar. (þess má geta hér að það svar kom ekki fram í erindi sr. Kristins í lok fundar , sjá lið 11.)
6. Ingibjörg Björnsdóttir ræddi um kirkjuna og sagði: „Kirkjan er fyrst og fremst um Krist. Þetta á ekki að snúast um menn.“ Hún vildi að hlustað væri á fólkið. Og sem svar við orðum sr. Úlfars Guðmundssonar þar sem hann bað söfnuðinn um „...að vera til friðs...“ sagði hún „...Jesús Kristur var aldrei til friðs.“
7. Hafsteinn Þorvaldsson lýsti ánægju með stöðu mála. Hann bauð sr. Kristinn velkominn og hvatti til samstöðu. Hann þakkaði fyrir gott starf í Selfosskirkju.
8. Þórður Árnason þakkaði sóknarnefnd fyrir að hafa boðað til þess fundar og sagði að þeir mættu vera fleiri. Fyrir hönd þess fólks sem stóð fyrir undirskriftum um að sóknarfólk fengi að kjósa sér sóknarprest lagði hann fram eftirfarandi áskorun fyrir fundinn (Áskorun límd í fundargerðarbók og er hér skönnun af því bréfi):
Áskorun til biskups Íslands.
Almennur safnaðarfundur, haldinn í Selfosskirkju 24. janúar 2010, krefst þess að prestur, sem auglýst hefur verið eftir og hafa mun sérstaka skyldur við Selfosskirkju, stýri og beri ábyrgð á öllu kirkjustafi í Selfosskirkju.
Greinargerð: Þann 1. desember sl. tók í gildi ákvörðun Kirkjuþings 2009 um sameiningu Selfossprestakalls og Hraungerðisprestakalls . Sú ákvörðun var tekin án samráðs við sóknarbörn á Selfossi og framkvæmd sameiningarinnar hefur valdið verulegri ólgu innan safnaðarins. Í ljósi þes að ekki var orðið við kröfu almennri prestkostningu telja sóknarbörn í Selfosssókn afar brýnt að prestuninn sem valinn verður á næstu vikum fái skýrar og afgerandi starfsskyldur við Selfosskirkju sem er ein fjögurra kirkna í hinu nýsameinaða prestakalli. Fyrir liggur enda auglýsing um að prestuninn hafi sérstakar skyldur við Selfosskirkju. Starfsreglna um presta þar sem segir að við ákvörðun um skiptingu starfa á milli presta í sama prestakalli beri að hafa hliðsjón af „sérstökum atvikum eða aðstæðum í prestakalli ef því er að skipta sem gera nauðsynlegt að grípa til sérstakra eða óvenjulegra ráðstafana“.
Fundarstjóri kvað áskorunina ver til umfjöllunar fundarmanna, en kosið yrði um hana í lok fundar.
9. Gísli Geirsson sagðist vona að sr. Óskar H. Óskarsson sem nú er settur prestur í Selfosskirkju yrði valinn prestur en umsóknarfrestur um prestsembættið rennur út á morgun eins og áður hefur fram komið. Gísli hvatti til samstöðu.
10. Ingimar Pálsson kvaðst hafa átt góðar stundir á Selfossi en hann kvaðst hafa átt hér heima í 10 ár. Hann hvatti til samstöðu og þakkaði fyrir fundinn.
11. Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson þakkaði fyrir þær umræður sem fram hafa farið. Hann las síðan upp yfirlýsingu sem hann óskaði eftir að færð yrði til bókar. Fer hún hér á eftir :
Í kirkjunni er spurt um þjónustu í kærleika, ekki vald. Heillavænlegast er að prestar rækti hugarfar sitt með það að leiðarljósi, virði rétt yfirvöld, ræki skyldur sínar við embættin og þjóni söfnuðum og þeim öðrum sem til þeirra leita í kærleika og trúmennsku.
Ég bið Selfosssókn og samstarfsfólki í kirkjunni blessunar Guðs og handleiðslu í lífi og starfi. Megi samvinna okkar allra verða á friðarvegi heilla og farsældar. Drottinn varðveiti okkur og verði söfnuðum Selfossprestakalls, sóknarnefndum og kirkjuyfirvöldum leiðarljós í lengd og bráð
Selfossi, 25. janúar 2010,
Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson sóknarprestur Selfossprestakalls.
12. Þvínæst las Bergur fundarstjóri upp áskorun þá sem Þórður Árnason hafði áður kynnt á fundinum (8) til atkvæða. En þá kvaddi :
Árni Valdimarsson sér máls ogbenti á að í áskoruninni þyrfti að koma fram að allt færi fram undir handleiðslu sóknarprests. Árni flutti ekki breytingartillögu. Fundarstjóri benti á að áskorunin hefði verið auglýst til umræðu strax eftir flutning og nægur tími gefist til andmæla áður en hún var nú borin upp til atkvæða.
Áskorunin var síðan borin upp og samþykkt með 64 atkvæðum gegn 10.
Fleiri tóku ekki til máls og slitu þeir Bergur og Eysteinn fundi kl. 14:30. Um 100 manns sátu fundinn.
Fundur sóknarnefndar haldinn í skrifstofu sóknarprests sunnud. 7. febr. 2010
að aflokinni messu. Hófst kl. 12:40.
1. Eysteinn Ó. Jónasson formaður setti fund og kynnti dagskrá.
Fram kom að valnefnd hefir komið einu sinni saman undir forystu sr. Halldóru Þorvarðardóttur. Nefndin mun kalla umsækjendur til viðtals nk. mánudagskvöld.
Umsækjendur eru um embætti prests:
Ása Björk Ólafsdóttir
Þráinn Haraldsson
Óskar Hafsteinn Óskarsson
Stefán Einar Stefánsson
Ragnheiður Karitas Pétursdóttir.
2. Tekin fyrir fundargerð byggingarnefndar kirkjunnar frá 4. febr. sl. en nefndarmenn funduðu með aðilum á Verkfræðistofu Suðurlands.
Samþykkt að byggingarnenfd haldi áfram skv. þeim hugmyndum sem fram koma í fundargerð þeirra: þ.e. að kjallari nýbyggingar falli út og lyfta verði einfaldari að gerð.
3. Eysteinn lagði fram bréf frá biskupsstofu til sóknarnenfdarformanna dagsett 2. febrúar 2010 þar sem kynntur er undirbúningur að kosningum til kirkjuþings 2010.
4. Samþykktur ferðastyrkur v. ferðar á æskulýðsmót í Rvk. ca 45 þús. kr.
5. Rætt um aðfengið listafólk við messur, t.d. þrisvar á ári. Ákveðið að leggja málið fyrir aðalsafnaðarfund.
Fundur sóknarnefndar 28. febrúar 2010 haldinn í skrifstofu prests í safnaðarheimili að aflokinni messu. Hófst kl. 12:20.
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund og bauð sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson velkominn en hann tekur við starfi sóknarprests í Selfosssókn og verður sóknarprestur í nýju Selfossprestakalli.
1. Gunnþór Gíslason kirkjuvörður lagði fram tillögu frá Landform ehf: „Reglur og leiðbeiningar um grafreiti í nýjum kirkjugarði Selfoss“, ásamt reglum um frágang grafreita. Sóknarnefnd samþykkir framkomin gögn með þeirri breytingu að liður 10 í „Reglum um umgengni í kirkjugörðum og frágang grafreita í Selfosskirkjugarði“ breytist að þar sem segir um jarðvegsskipti breytist úr 0,45m í 0,60m (að lágmarki undirþunga grafsteina EÓJ).
2. Gunnþór fékk heimild fundarins til að leita eftir verðtilboðum í grafartöku í kirkjugarði en samningur við Valdimar Árnason núverandi verktaka rennur senn út. Þá fékk Gunnþór heimild til að athuga nánar með rafstraum í nýjasta kirkjugarði. Samþykkt var að fækka grenitrjám við götu (sunnan við kirkju) úr 4 í 2. Gunnþór falið að leggja viðhaldsóskir fram við gerð fjárhagsáætlunar.
3. Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson gerði grein fyrir stöðu mála varðandi gerð samstarfssamnings milli prestanna í Selfossprestakalli. Kvað hann það vilja sinn að þessu verki lyki n.k. þriðjudag.
Sr. Óskar sagði að unnið væri að samstarfssamningi sem væri á þessu stigi trúnaðarmál. Sr. Kristinn kvaðst hafa lagt fram samningsdrög sl. þriðjudag og fengið athugasemdir við þær frá sr. Óskari.
Rætt um starfsaðstöðu presta í Selfosskirkju og kom fram að sr. Kristinn óskar eftir starfsaðstöðu í skrifstofu prests.
Björn Gíslason kvaðst ekki ræða um skrifstofuaðstöðu fyrr en fyrir lægi undirritaður samstarfssamningur milli prestanna.
Guðmundur Búason kvað þann prest sem nú hefir skrifstofu í Selfosskirkju myndu hafa hana áfram þar til breytingunni væri lokið á húsakynnum þar sem skrifstofum verði fjölgað.
4. Eysteinn lagði fram „Minnisblað um afnot og umráð af kirkju og safnaðarheimili“ gert af Sigurði Sigurjónssyni lögmanni skv. ósk Eysteins.
Þar eru rakin lög og reglur um þetta efni þar sem fram kemur að sóknarnefnd hefir full umráð yfir safnaðarheimili. Síðan segir í álitinu: „Þar sem sameining prestakalla í Selfossprestakall hefir borið mjög brátt að hefir ekki á svo skömmum tíma sem raun ber vitni, gefist tími til þess að leysa mál þannig að tveir prestar geti haft hvor sína skrifstofu í Selfosskirkju. Í auglýsingu um prestsembættið á Selfossi er sérstaklega tekið fram að prestur sá er valinn er hafi sérstakar skyldur við Selfosskirkju. Í því ljósi þykir rétt að hann hafi það skrifstofuherbergi sem hann er nú í, í Selfosskirkju. Þá þykir rétt að taka fram að sóknarnefnd hefir upplýssst að fyrirhugað er á komandi sumri að stækka safnaðarheimili Selfosskirkju og í framhaldi af því verða gerðar breytingar á núverandi húsakynnum þannig að skrifstofum verði fjölgað.“ Sóknarnenfd lýsir samþykki við minnisblaði lögmanns.
5. Eygló Gunnarsdóttir djákni flutti þakkir frá Ninnu Sif æskulýðsfulltrúa fyrir styrk frá Selfosskirkju vegna æskulýðsmóts.
Eysteinn lagði fram bréf dags. 23. febrúar varðandi umsókn frá Selfosssókn um styrk úr jöfnunarsjóði sókna 2010. Styrkbeiðni er hafnað. Undir bréfið ritar f.h. kirkjuráðs Magnhildur Sigurbjörnsdóttir verkefnisstjór.
6. Rætt um framboðsmál til kirkjuþings. Björn Gíslason lagði til að Eysteinn Ó. Jónasson yrði boðinn fram sem aðalmaður en Guðmundur Búason varamaður. Samþykkt samhljóða.
7. Samþykkt var að aðalsafnaðarfundur yrði sunnudaginn 14. mars nk. eftir messu. Þá yfirgaf sr. Kristinn fundinn.
8. Þá kynnti Björn Gíslason efni í næsta fréttabréf.
9. Stefnt skal að því að fundartími sóknarnefndar verði framvegis 3. þriðjudag hvers mánaðar kl. 17.
10. Eysteini og Gunnþóri falið að ganga frá þeim gögnum í skrifstofu prests og tilheyra sr. Gunnari Björnssyni. Skrásetja þau vandlega og koma fyrir í kjallara.
Fundur sóknarnefndar í skrifstofu prests mánudaginn 8. mars 2010
Hófs kl. 18:15
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund og kynnti dagskrá.
2. Sr. Kristinn var spurður um stöðu samstarfssamnings milli prestanna tveggja. Sr. Kristinn svaraði að „prófastur sé að taka við málinu“.
Hér yfirgaf sr. Kristinn fundinn.
3. Guðmundur Búason gjaldkeri lagði fram reikninga Selfosskirkju og fór yfir ýmsa lið þeirra og skýrði fyrir fundarmönnum.
4. Eysteinn lagði fram gögn um verðtilboð sem leitað verður eftir um grafartöku. Gögnin eru dags. 5. mars 2010 undirrituð af Gunnþóri Gíslasyni.
„Verðtilboðsblað samþykkt af sóknarnefnd.“
5. Erla Kristjánsdóttir flutti ósk frá Edith Molnár að sett yrði hurðarpumpa á hurð milli anddyri safnaðarheimilis og sals safnaðarheimilis (jarðhæð). Samþykkt að fela Þórði Stefánssyni og Gunnþóri kirkjuverði að framkvæma verkið.
6. Gerð voru drög að framkvæmdaáætlun kirkju og kirkjugarðs.
Aðalsafnaðarfundur fyrir árið 2009 haldinn í safnaðarheimili Selfosskirkju 14. mars 2010 að lokinni messu. Fundur hófst kl. 12:45.
1. Eysteinn Ó. Jónasson formaður sóknarnefndar setti fund.
2. Gerði tillögu um Jóhann Bjarnason sem fundarstjóra og Sigurjón Erlingsson sem fundarritara.
3. Sigurjón Erlingsson ritari sóknarnefndar las fundargerð síðasta aðalsafnaðarfundar sem var 8. mars 2009. Sr. Úlfar Guðmundsson gerði athugasemd við lið 2 í fundargerðinni þar sem sagt er frá því í skýrslu formanns þegar sr. Gunnar Björnsson var settur í leyfi frá störfum í maíbyrjun 2008. Þá er þess ekki getið í fundargerðinni að sr. Úlfar leysti hann af í maímánuði, en sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson í júní. Síðan tók sr. Guðbjörg Jóhannsdóttir við fram að áramótum eins og fram kemur í fundargerðinni – o.s.frv.
4. Eysteinn Ó. Jónasson gerði grein fyrir starfsemi og rekstri ársins 2009. Hér kemur sá hluti sem hann skráði niður:
Skýrsla formanns á aðalsafnaðarfundi 14. mars 2010.
Kæri söfnuður. Ég ætla hér að rekja það helsta sem gerðist á árinu 2009, en það var þó það viðburðaríkt að hér eru engin tök á að vera með tæmandi lýsingu á öllu.
Á fyrsta fundi síðasta árs, eða 2. janúar var sr. Óskar H. Óskarsson sérstaklega boðin velkominn til starfa í Selfosskirkju, en sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir sem leysti sóknarprest okkar af í 5 mánuði gaf ekki kost á sér nema til áramóta. Sr. Óskar var hins vegar á lausu vegna óvæntra aðstæðna og gat hlaupið í skarðið með stuttum fyrirvara og tekið við undirbúningi fermingarbarna. Hann komst á ótrúlega stuttum tíma inn í öll þau störf sem hér þurfti að sinna á miðju vetrarstarfi í Selfosskirkju. Örlögin höguðu því síðan þannig að hann leysti af í rúmt ár eða til lok febrúar s.l. að hann var valinn prestur í hið nýja sameinaða prestakall sem kirkjuþing ákvað að demba yfir okkur. Það er skemmst frá því að segja að störf sr. Óskars hafa verið sérstaklega vel metin af söfnuðinum og kirkjusókn aldrei verið meiri en í hans tíð og átti það einnig við yfir sumartímann. Starfsemi 2ja barnakóra og unglingakórs undir stjórn Edit Molnár blómstraði og barna- og unglingastarf var með mesta móti undir ötulli stjórn Herdísar Styrkársdóttur fram á vorið en Ninna Sif Svavarsdóttir tók síðan við því starfi í lok júlí. Ekki er ég hér með skráðan fjölda athafna á s.l. ári en djákni og prestur mun flytja okkur tölulegar upplýsingar hér á eftir og e.t.v. aðrir starfsmenn. Nokkrar svokallaðar léttmessur voru haldnar á árinu og komu þar við sögu ýmsir þekktir söngvarar og hljóðfæraleikarar. Ein fjölsótt útimessa var haldin á grasbalanum norðan við kirkjuna eitt júlíkvöldið og kunnu þátttakendur vel að meta þá yndislegu samverustund sem þóttist heppnast mjög vel.
Aðalsafnaðarfundur var að venju haldinn fyrripart marsmánaðar 2009 eða 8. mars. Þá hafði sóknarnefnd ekki borist umbeðnar hugmyndir kirkjuráðs varðandi tilhögun umræddrar sameiningar Hraungerðis- og Selfossprestakalla. Af þeim sökum var málið ekki auglýst til umræðu né afgreiðslu á fundinum. Björn Gíslason sóknarnefndarmaður bar hins vegar upp ályktun um að fresta öllum hugmyndum um sameiningu en.....“stefnt að samstarfssamningi sókna í prófastdæminu um störf prestanna og gagnkvæmar afleysingar“ Þessi ályktun var samþykkt samhljóða enda sóknarprestar Eyrarbakka-, Selfoss- og Hraungerðisprestakalla búnir að leggja nokkra vinnu í þessa hugmynd sem kom frá þáverandi prófasti okkar. Héraðsfundur var síðan haldinn í Þingborg 28. mars og þar urðu þó nokkrar umræður um samstarf prestanna og tillögu sr. Kristins Ág. Friðfinnssonar varðandi aukið samstarf presta í þáverandi prófastsdæmi í stað sameiningar, borin upp og samþykkt samhljóða.
Helgina áður, eða 22. mars héldum við hátíðarmessu þar sem vígslubiskup sr. Sigurður Sigurðarson predikaði en eftir athöfn í kirkju var afhjúpaður minnisvarði um heiðurshjónin sr. Sigurð Pálsson fyrsta prest í Selfosskirkju og konu hans Stefaníu Gissurardóttur. Veislukaffi var síðan veitt í safnaðarheimili og margir sem minntust þeirra hjóna með fögrum orðum.
Og í mars kom mat viðlagatryggingar á tjóninu í jarðskjálftanum sem þeir mátu upp á tæpar 10. milljónir.
Já margt gerðist í þessum mars mánuði því að auk fyrrgreindra atriða þá kom bréf frá biskupsstofu dagsett 23. mars, sem kvað á um það að þar sem niðurstaða í hæstarétti í máli sr. Gunnars Björnssonar teldust ekki brjóta landslög, að þá tæki hann aftur við embættinu frá og með 1. maí. Strax í kjölfarið bárust mótmæli frá Æskulýðsráði Þjóðkirkjunnar um að það sem þó kæmi fram og væri viðurkennt í dómnum bryti samt í bága við siðarnefnd Kirkjunnar og vildu að málinu yrði vísað til Úrskurðarnefndar kirkjunnar.
Um sama leyti felldi siðanefnd presta þann dóm hjá sér að sömu atriði og æskulýðsráð taldi upp, væru brot á siðareglum presta. Dróst því málið í höndum Úrskurðarnefndar fram í miðjan októbermánuð sem varð til þess að biskup ákvað að færa sr. Gunnar Björnsson úr starfi sóknarprests á Selfossi í sérverkefni hjá Biskupsstofu.
Strax og þetta var ljóst fengum við bréf frá kirkjuráði dagsett 16. október (föstud. í tölvupósti eftir venjulegan vinnutíma) þar sem kynnt er tillaga um sameiningu Hraungerðis- og Selfossprestakalla. Óskað eftir því að málið verði kynnt á auka-héraðsfundi (að kvöldi 20. október, þriðjudag) og umsögn skilað til biskupafundar fyrir 20. október nk. (fyrir sama dag og fundur átti að verða). Mér var falið af sóknarnefnd að fylgja eftir á þeim aukafundi, ítrekun mikilvægi þess að Selfosssöfnuður fengi sem fyrst að velja sér nýjan prest til að hefja uppbyggingu í söfnuðinum og skapa traust eftir 16 mánaða óvissu í prestamálum okkar. Við töldum að aðeins á þeim grunni yrði hægt að hefja umræður um mögulega sameiningu prestakallanna síðar meir. Tillaga þar að lútandi var samþykkt samhljóða af sóknarnefnd. Auka-héraðsfundur samþykkti líka samhljóða að tillögur frá héraðsfundi í mars stæðu.
Þrátt fyrir þetta fóru mál eins og alþjóð nú þekkir og sitjum við uppi með þá niðurstöðu þrátt fyrir miklar umræður um aukið lýðræði í kirkjunni fáum við ekki að hafa áhrif á jafn mikilvæg mál í okkar sókn. Starfsreglur um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007
3. gr. ..................... Tillögur um breytingar á skipan sókna og prestakalla skulu fá umsögn á aðalsafnaðarfundum viðkomandi sókna og því næst bornar upp á héraðsfundi, sem sendir þær biskupafundi. Hann býr málið til kirkjuþings.
Það er því ekki að furða að ofangreind mál hafi heimtað marga fundi hjá sóknarnefnd auk annarra nefnda skipaðra af henni. Mér telst til að haldnir hafi verið 21 bókaðir sóknarnefndarfundir á árinu. Þess fyrir utan hélt byggingarnefnd fjölda funda með bæjaryfirvöldum og arkitektum. Sama má segja um Sigurjón Erlingsson sem hélt utan um uppbyggingu nýs kirkjugarðs, en lokaúttekt á þeim framkvæmdum fór fram 2. október.
Ómældar stundir fóru síðan í fyrrgreind sameiningarmál og í framhaldi af því prestamál og fl. sem ekki er enn búið að útkljá, en þar sem áhugasamir geta flett upp á öllum fundargerðum Sóknarnefndar Selfosskirkju á heimasíðu kirkjunnar: selfosskirkja.is og þar undir flipanum Sóknarnefnd má sjá fundargerðir frá 1953 til þessa dags, ætla ég ekki að tjá mig frekar um þau málefni hér.
Mig langar að biðja sr. Óskar sem starfaði sem sóknarprestur umrætt ár djákna og Ninnu Sif að segja okkur frá annarri starfsemi kirkjunnar.
Sr. Óskar H. Óskarsson flutti skýrslu um starfið á sl. ári. Þar kom m.a. fram að messur voru milli 60 og 70. Skírnir voru 71, fermingar 92ja barna og útfarir 20. Þá gat hann um fræðsluerindi sem flutt voru af starfsfólki kirkjunnar. Hann þakkaði sóknarnefnd gott samstarf.
Þvínæst flutti Ninna Sif Svavarsdóttir æskulýðsfulltrúi Selfosskirkju skýrslu um starfið en hún hóf störf 1. sept. sl. með 60% stöðugildi í Selfosssókn, en 40% fyrir Árnesprófastdæmi sem var. Verksvið hennar er umsjón barna og unglingastarfi í kirkjunni sem er sunnudagaskóli, (40 – 50 manns) kirkjuskóli fyrir 1. – 4. bekk, TTT-starf 10 til 12 ára starf og æskulýðsfélaginu, sem er fyrir unglingana í 8. – 10. bekk.
Eygló Gunnarsdóttir djákni flutti ágrip af starfi sínu sl. ár. Hún er í samstarfi við Ninnu Sif í æskulýðsstarfinu, hefir aðstoðað prestinn sr. Óskar H. Óskarsson í messunni og leitt guðsþjónustur nokkrum sinnum. Hún sér um foreldramorgna einu sinni í viku, heimsækir Dagdvöl aldraðra, sér um 12-spora andlegt ferðalag í kirkjunni ásamt Margréti Scheving og Þorvaldi Halldórssyni. Þá hefur Eygló umsjón með tíðasöng á morgnana, fjóra morgna í viku og margt fleira.
5. Guðmundur Búason gjaldkeri las og skýrði reikninga.
Rekstrarreikningur Selfosskirkju: Tekjur:43.878.745,-kr.
Gjöld. 43.749.379,-kr.
Tekjuafgangur með fjármunartekjum 4.357.547, - kr.
Efnahagsreikningur: Eignir alls: 325.017.556,kr.
Þar af eru bankainnistæður og sjóðir 43.664.725,-kr.
Rekstrarreikn. Hjálpasjóðs Selfosskirkju Tekjur: 307.553,-kr.
Gjöld : 230.000, kr.
Efnahagsreikn. Hjálparsjóðs. Eignir alls : 3.946.771,-kr. (Bankainnist.)
Rekstrarreikn kirkjugarðs: Tekjur:8.766.256,-kr.
Gjöld : 22. 861.913,kr. Þar af vegna stækkunar á kirkjugarði 16.025.916,- kr. Gjöld umfr. tekjur: 11.162.214,-kr.
Efnahagsreikningur kirkjugarðs = bankainnistæður og sjóðir 20. 657.717,-kr.
Reikningar áritaðir af kjörnum skoðunarmönnum, : Kristínu Pétursdóttur og Guðmundi Theódórssyni. Auk þeirra undirritaði sóknarnefnd reikningana.
Umræður um reikninga: Sr. Úlfar Guðmundsson rifjaði upp þá tíma þegar hann hóf störf sem prestur, þá voru kirkjurnar tekjulitlar og miklar breytingar hefðu orðið til hins betra á síðari árum í fjárhagsmálum. Þá sagði sr. Úlfar að Selfosskirkja hefði ótvírætt forystuhlutverk í prófastsdæminu.
Eysteinn Ó. Jónasson taldi fjárhagsstöðuna góða og aldrei væri framkvæmt nema eiga fyrir framkvæmdakostnaði.
Ingimar Pálsson þakkaði fyrir góða framsetningu reikninga, sem væru til sóma.
Síðan voru reikningar bornir upp og samþykktir samhljóða.
6. Starfsemi héraðsnefndar og héraðsfunda. Eysteinn Ó. Jónasson lagði fram og skýrði fundargerð Héraðsfundar Árnesprófastsdæmis frá 28. mars 2009. Fundargerðin er 8 blaðsíður.
7. Ákvörðun um framkvæmdir og framtíðarskuldbindingar. Guðmundur Búason lagði fram framkv. áætlun fyrir 2010. Framkvæmdir í kirkjugarði 13. millj. Viðhald og endurbætur v. kirkju 3.600.000,- Nýframkvæmdir við kirkju 25.000.000,-kr.
Sigurjón Erlingsson ræddi um framkvæmdir. Sagði að nýi kirkjugarðurinn væri tilbúinn til notkunar. Í honum eru tæplega 1000 grafarstæði auk um 200 duftreita. Eftir er að leggja slitlag á akstursbraut, hlaða lágan grjótvegg á langhlið ármegin, setja upp bekki ofl. þá ræddi hann um röðun á framkvæmdum við nýbyggingu við safnaðarheimili og síðan innanhúsbreytingar.
Framkvæmdaráætlun samþykkt samhljóða.
8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga. Endurkjörin voru þau Kristín Pétursdóttir og Guðmundur Theódórsson.
9. Önnur mál.
Sólrún Guðjónsdóttir þakkaði sóknarnefnd fyrir vinsemd í sinn garð, en hún var beðin að teikna kort fyrir kirkjuna. Tvö kort voru valin til prentunar. Þá benti hún á að opnanlegan glugga vantaði í skrúðhúsið og fjölga þyrfti bílastæðum.
Jóhanna Guðjónsdóttir flutti eftirfarandi ræðu sem hún óskaði bókunar á í heild. Fer hún hér á eftir:
Ég er ósátt við vinnubrögð og framkomu sóknarnefndar Selfosskirkju eins og ég les mér til um þau á vefsíðu kirkjunnar og í héraðs- og landsmálablöðum. Miðað við starfsreglur þjóðkirkjunnar er verið að brjóta lög og leggja sóknarprestinn hér í einelti í þessari helgu sóknarkirkju minni. Sóknarprestur gegnir ótvíræðu forystuhlutverki og hann á að hafa forystu um verkaskiptingu á milli prestanna og hann á samkvæmt skýru ákvæði (5. gr.) starfsreglna um presta (nr. 735 frá 1998) að hafa forustu um starf kirkjunnar. Þar segir orðrétt: „Sóknarprestur skal vera í fyrirsvari um kirkjulegt starf (safnaðarstarf) í sóknum prestakalls síns og hafa forystu um mótun þess og skipulag.“ Að auki gilda ein lög um stöðu, stjórn og starfshætti kirkjunnar og þau er nr. 78/1997. Það er augljóst hverjum sem les fundargerðirnar á netinu að sóknarnefndin hefur kosið að líta fram hjá því að hingað er kominn er sóknarprestur með forystuhlutverk að lögum og ver að fá hefðbundna starfsaðstöðu og vera sóknarfólki tiltækur með hefðbundnum hætti. Ég hef unnið með börnum, unglingum og ungu fólki og veit því mæta vel hvað einelti og ofbeldi er. Mér finnst ég lesa í gegnum fundargerðir og yfirlýsingar formanns sóknarnefndar í blöðum að augljóst einelti er í gangi gegn sóknarpresti okkar. Það er mjög alvarlegt mál. Sóknarnefnd sem hagar sér með þessum hætti á að segja af sér þegar í stað.
Ég hef haft samband við Ragnhildi Benediktsdóttur skrifstofustjóra á Biskupsstofu og beðið hana að útskýra frasann í auglýsingunni um prestsstarfið: prestur hafi sérstakar skyldur við Selfosskirkju. Hennar svör eru skýr, það að prestur hafi sérstaka skyldur við Selfosskirkju þýðir að meiri áhersla sé lögð á þjónustu við íbúa Selfosssóknar vegna þess hve fjölmenn hún er miðað við íbúafjölda sveitanna sem tilheyra nú prestakallinu. Að sjálfsögðu gildir nákvæmlega hið sama um störf sóknarprestsins. Hann þarf líka að hafa í huga fjölmennið í bæjarfélaginu og fámennið í sveitinni. Þeir þurfa saman, sóknarprestur og prestur, að huga að öllum sóknarbörnum sínum þó augljóslega hljóti mestur tími að fara í stærstu sóknina.
Mitt mat er að vegna slælegra vinnubragða sé sóknarnefnd ekki hæf til að halda áfram störfum. Eftir lestur fundagerða sóknarnefndar á vefsíðu kirkjunnar hef ég komist að þeirri niðurstöðu að innan nefndarinnar hafi í raun, með árunum, orðið til sterkt samstarf um rangar áherslur og lokað samfélag sem lifir í allt öðrum hugarheimi en hinn almenni borgar hér á Selfossi. Samstarfið hefur að mínum dómi ekki falið í sér gagnrýna umræðu nefndarmanna auk þess sem áherslu hefur skort á hvað sé sókninni og hennar sóknarbörnum fyrir bestu. Samstarfið hefur greinilega farið að snúast um vald og nú virðist aðalsmerki nefndarinnar vera valdníðsla og einelti sem á ekkert skylt við kristið þjónustuhlutverk þjóðkirkjunnar.
Spurningar mínar til þessa fundar eru eftirfarandi:
1. Af hverju er vefsíða Selfosskirkju uppfærð vikulega en það er ekki uppfært að við höfum eignast nýjan sóknarprest og nýjan prest?
2. Af hverju eru fundargerðir sóknarnefndar skráðar með mismunandi hætti (6. des., 13. des. og 14. des.) þ.e. sumar eru skráðar með stóru letri á meðan aðrar eru skráðar með hefðbundnu letri? Er sá sem skráir fundargerðirnar með þessu að lýsa eigin háherslum og mati?
3. Eftir hvaða lögum fer Björn Gíslason sóknarnefndarmaður þegar hann segist, þann 28. feb. ekki ætla að ræða um starfsaðstöðu prestanna fyrr en búið er að skrifa undir samstarfssamning?
a. Í hvaða starfsreglum kemur fram að undirritun samstarfssamning sé forsenda þess að sóknarprestur fái starfsaðstöðu í kirkjunni?
b. Af hverju hefur Björn ekki gert sömu kröfur til nýs prests – þ.e. að hann hafi undirritað samstarfssamning áður en hann fær afhenta starfsaðstöðu sóknarprests:
4. Hvernig getur Guðmundur Búason ákveðið, málefnalega og kristilega, að aðeins annar prestanna, hinn nýi prestur, sé þess verður að hafa afnot að hinni hefðbundnu starfsaðstöðu sem hefur mjög skýran sess í hugum Selfyssinga?
5. Hvernig getur sóknarnefnd komið svona misjafnlega fram við nýju prestana okkar? Gerir hún ekki ráð fyrir að þeir séu Guðs þjónar sem geti unnið saman og deilt húsakynnum þar til aðrar framtíðarlausnir leysa vandann?
6. Hvers vegna ákveður sóknarnefnd þann 28. feb nýjan framtíðarfundartíma fyrir sóknarnefndina án samráðs við nýjan sóknarprest?
Í rauninni gæti ég spurt margra fleiri spurninga um framgöngu sóknarnefndar á liðnum vikum og mánuðum. Ég trúi að aðrir verði til þess að draga margt fram í dagsljósið sem ég kem ekki inn á hér á næstu vikum. T.d. þarf að athuga vel hvert samband afleysingaprestsins, sr. Óskars, sem nú er orðinn prestur, hefur verið við þá ótrúlegu atburðarás sem við okkur hefur blasað.
Ég óska eftir að þetta álit mitt og allar spurningarnar verði færðar til bókar.
Magnús Axelsson ræddi um stöðu mála í Selfosssöfnuði. Hann kvaðst hafa verið í Fríkirkjunni í Reykjavík en væri nýlega fluttur til Selfoss. Hann skoraði á prestana að skapa einingu í sókninni.
Guðmundur Búason ræddi um skrifstofumál prestanna vegna ummæla Jóhönnu Guðjónsdóttur í 4. lið spurninga hennar. Sagði að ákvarðanir um starfsaðstöðu prestanna væru teknar sameiginlega af sóknarnefnd. Hann einn hefði ekkert sjálfstætt vald í þessu efni frekar en öðru.
Sólrún Guðjónsdóttir gagnrýndi Jóhönnu fyrir málflutninginn. Kvaðst aldrei hafa séð hana, hvorki fyrr né síðar í kirkju eða kirkjustarfi.
Björn Gíslason ræddi um skrifstofumálin vegna spurningar Jóhönnu í 3. lið spurninga í ræðu hennar. Björn skýrði sína afstöðu.
Þórður Árnason lýsti stuðningi við sóknarnefndina og spurði síðan um samstarfssamning milli prestanna.
Sr. Úlfar Guðmundsson taldi að sum orð sem fallið hefðu væru óheppileg. Vinna þyrfti úr málum og treysta því að allt fari vel.
Sr, Óskar H. Óskarsson sagði að samstarfssamningur væri kominn til prófasts.
Sigurjón Erlingsson gerði athugasemdir við ræðu Jóhönnu Guðjónsdóttur og mótmælti fullyrðingum um einelti af sinni hálfu í garð sóknarprests, en fullyrt er að sóknarnefnd hagi sér þannig.
Valgeir Jónsson gagnrýndi að formaður sóknarnefndar og kirkjuvörður væru svilar og kirkjukórsmenn ættu ekki að vera í sóknarnefnd. Það væri ekki í lagi „að fámennir aðilar í kirkjunni ráði.“
Ingimar Pálsson saknaði þess að ekki var bókað á síðasta almenna safnaðarfundi meira af því sem sr. Úlfar Guðmundsson sagði þar. Þá lagði hann til að tímamótaræða sr. Kristins Ág. Friðfinnssonar í kirkjunni fyrr um daginn yrði sett á vefsíðu kirkjunnar. Bað einnig um að lög og reglur séu virtar.
Kjartan Björnsson kvaðst vona að með þessum umræðum verði loftið hreinsað. Þetta væru erfiðið tímar. Sækja verður fram kirkjunni okkar til heilla.
Hafsteinn Þorvaldsson taldi ekki rétt hjá Jóhönnu Guðjónsdóttur að um einelti gegn sóknarpresti væri að ræða. Hún hefði með málflutningi sínum „kastað sprengju inn á fundinn.“ Ná yrði saman um öflugt kirkjustarf.
Sólrún Guðjónsdóttir tók undir það sem Hafsteinn sagði og bað guð „að hjálpa því fólki sem aldrei lætur sjá sig hér en kemur svo með þessi leiðindi.“
Guðmundur Búason ræddi um að taka þyrfti ákvörðun um hvort ræður prestanna yrðu settar á vef kirkjunnar. Kvað hann að „tímamótaræður“ sem Ingimar Pálsson minntist á heyrðu sóknarbörn Selfosssafnaðar um hverja helgi. Síðan ræddi hann um sameiningar prestakalla og að grundvallarmunur væri á sameiningunni hér og annars staðar þar sem í sameiningu hér fælist enginn sparnaður.
Margrét Scheving lagði til að ræða sr. Kristins færi inn á vefinn. Fundarstjóri bar síðan undir atkvæði hvort ræður prestanna verði birta á vefnum og var það samþykkt samhljóða af fundarmönnum. (Auka athugasemd EÓJ: fram kom þó að það væri að sjálfsögðu mál prestanna hvort þeir gerðu slíkt en ekki fundarins.)
Eysteinn Ó. Jónasson svaraði 2. lið í spurningum Jóhönnu Guðjónsdóttur um hvers vegna væri mismunandi leturstærð á fundargerðum sóknarnefndar á vefsíðu kirkjunnar. Hann kvaðst sjá um innfærslur fundagerða á vefinn og væri allt skráð með sama letri. Þjónustufyrirtækið sem sér um grunninn uppfærði grunninn vegna tapaðra gagna og við nýja uppfærslu varð eitthvað um breytingar leturstærða.
Fundur sóknarnefndar 15. mars 2010 í fundarherbergi sóknarnefndar og skrifstofu prests, hófst kl. 18:15.
Formaður sóknarnefndar Eysteinn Ó. Jónasson setti fund.
Fundarefni: Skrifstofumála prestanna með vísun til 1. liðar í fundargerð sóknarnefndar frá 8. mars sl. þar sem segir: „Sóknarnefnd samþykkir að athuga málið nánar.“
„Sóknarnefnd ítrekar það tilboð sitt til sóknarprests að hann fái skrifstofu í rishæð safnaðarheimilis, en minnir á fyrirhugaðar breytingar á jarðhæð þar sem prestarnir hafi hvor sína skrifstofu“ Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 19:50
Allir aðalfulltrúar sóknarnefndar voru mættir og fundarritari var Sigurjón Erlingsson.
Fundur sóknarnefndar 20. apríl 2010,
haldinn í skrifstofu prests í safnaðarheimili. Hófs kl. 17:00
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund og óskaði eftir því að starfsmenn sem mættir eru á fundinn segðu frá starfi sínu.
1. Ninna Sif Svavarsdóttir taldi að æskulýðsstarfið hefði gengið vel og sagði frá ýmsum þáttum þess bæði á Selfossi og í prófastdæminu.
Edit Molnár kórstjóri sagði frá starfsemi barna og unglingakóranna en 87 eru nú starfandi í þeim. Starfið hefði gengið vel.
Jörg Sondermann organisti sagði frá kórstarfinu og m.a. að mætingar alls í kórstarfinu væru um 126 á árinu.
Eygló Gunnarsdóttir djákni sagði frá starfi sínu og vitnaði í ársskýrslu sína frá síðasta aðalsafnaðarfundi.
Gunnþór Gíslason kirkjuvörður ræddi um að þörf væri á að endurnýja messuklæði. Þá sagðist hann vera að vinna að sléttun leiða í kirkjugarði í samráði við aðstandendur..
Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson benti á að þegar hugað er að kaupum á nýjum messuklæðum væri ástæða til að athuga að kaupa frekar íslensk klæði.
2. Eysteinn, ásamt Guðmundi Búasyni form. bygg. nefndar kynnti framlagða fundargerð byggingarnefndar kirkjunnar frá 9. apríl sl. en fundargerðinni fylgdi teikning af fyrirhuguðum innanhússbreytingum að gera tvö skrifstofuherbergi fyrir prestana. „Sóknarnefnd samþykkir framkomnar hugmyndir byggingarnefndar og að stefnt skuli að því að fá Þórð Stefánsson til að framkvæma verkið, enda sé það ekki af þeirri stærðargráðu að ástæða sé til útboðs.“
3. Eysteinn las bréf frá biskupi Íslands dags. 5. febr. 2010. Efni: Átak um skil skjala sóknarnefnda til héraðsskjalasafna.
4. Sigurjón Erlingsson lagði fram skrá sem hann hefir gert um gjafir framkvæmdir og annað sem Selfosskirkju hefir bæst frá því að síðasta skrá varð gerð 25/3 2001.
5. Eysteinn spurðist fyrir um það hjá sóknarpresti hvað liði samstarfssamningi prestanna. Sr. Kristinn sagði að málið væri nú í höndum sr. Jóns Baldvinssonar vígslubiskups á Hólum og niðurstöðu væri vonandi að vænta sem fyrst.
6. Samkomulag var gert milli ritara, sóknarnefndar og sóknarprests um að út falli hluti setningar í fundargerð 8. mars sl.
Fundi slitið kl. 19:35 og eftirfarandi undirrituðu fundargerð: María Kjartansdóttir, Eygló Jóna Gunnarsdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Kristinn H. Friðfinnsson, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Jörg E. Sondermann, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Eysteinn Ó. Jónasson, Sigríður Bergsteinsdóttir.
Séra Óskar H. Óskarsson Þórður Stefánsson og Gunnþór Gíslason urðu að víkja af fundi skömmu fyrir fundarlok. Þá véku Ninna Sif og Edit Molnár af fundi eftir að hafa gert grein fyrir starfi sínu.
Fundur sóknarnefndar í rislofti safnaðarheimilis 18. maí 2010. Hófst kl. 17:00.
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund. Hann sagði frá :
1. Gjafabréfi fyrir altarisklæði sem Sveitarfélagið Árborg afhenti á 50 ára afmæli Selfosskirkju. Gjöfin hefir enn ekki verið afhent. Þá var lagt fram gjafabréf til minningar um heiðurshjónin sr. Sigurð Pálsson og Stefaníu Gissurardóttur frá 50 ára fermingarbörnum hans frá 8. maí 1960. Bréfinu fylgja kr. 27.000,-kr. sem Björn Gíslason afhenti fh. gefenda.
Edith Molnár þakkaði fyrir stuðninginn vegna ferðalags unglingakórsins og færði fundinum konfektkassa.
2. Eysteinn las bréf frá prófasti Halldóru J. Þorvarðardóttur um þátttöku prófastdæmisins í launakostnaði æskulýðsfulltrúa sem er 40%. Héraðssjóður mun greiða skv. þessu til maíloka ársins 2011.
Ákvörðun biskups um skiptingu starfa í Selfossprestakalli.
Sóknarprestur og prestur eru samstarfsmenn í sóknum prestakallsins og ber að haga þjónustu sinni og samstarfi í samræmi við það. Báðir lúta þeir tilsjón prófasts og biskups.
Sóknarprestur er í fyrirsvari um kirkjulegt starf í sóknum prestakallsins og hefur forystu um mótun þess og skipulag. Í fyrirsvari og forystu sóknarprests felst ekki stjórnunarvald eða boðvald yfir presti.
Sóknarnefnd er ásamt sóknarpresti í fyrirsvari fyrir sóknina gagnvart stjórnvöldum og einstökum mönnum og stofnunum.
Séu prestar fleiri en einn í prestakalli skulu þeir undir forustu sóknarprests skipta með sér störfum í samræmi við almennar starfsreglur þar að lútandi.
Í samræmi við starfsreglur um presta hefur prófastur hlutast til um að sóknarprestur og prestur í Selfossprestakalli skipti með sér verkum. Samkomulag um skiptingu starfa prestanna mun liggja fyrir í aðalatriðum en ágreiningur er um umsjón með daglegu kirkjustarfi við Selfosskirkju.
Þar sem ekki hefur náðst samkomulag þar að lútandi hef ég ákveðið:
– að prestur hafi umsjón með daglegu kirkjustarfi í Selfosskirkju samkvæmt árlegri áætlun um safnaðarstarfið og á grundvelli samkomulags um skiptingu starfa
– að prestur undirbúi starfsmannafundi í Selfosskirkju í samráði við sóknarprest og sóknarnefnd.
Miðað við fólksfjölda og skiptingu sóknarbarna milli sókna í prestakallinu er eðlilegt að prestarnir hafi báðir skrifstofu í safnaðarheimili Selfosskirkju.
Reykjavík, 11. maí 2010
Sr. Kristinn tók einnig til máls um úrskurðinn.
Umræður voru síðan um úrskurð biskups, kirkjustarfið og blaðaskrif að undanförnu.
4. Gunnþór kirkjuvörður kynnti ýmsa liði sem í framkvæmd eru í viðhaldi húsa og lóðar, skv. samþykktri fjárhagsáætlun.
5. Þórður Stefánsson sagði frá stöðu framkvæmda við breytingar á skrifstofuhluta safnaðarheimilis en Þórður vinnur verkið ásamt öðrum verktökum í hinum ýmsu greinum. Búið er að saga dyraop að skrifstofurými og fjarlægja vegghluta þar framan við. Hringstigi í horni hefir verið fjarlægður og veggur kringum hann. Búið að bora fyrir tveimur burðarsúlum niður á klöpp, undir steyptan vegg sem kemur kringum nýjan brunastiga.
Fundur sóknarnefndar á baðstofulofti safnaðarheimilis 18. ágúst 2010.
Hófst kl. 17:00.
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund.
1. Rætt um starfsmannafundi í kirkjunni. Samþykkt að stefna að fundi sóknarnefndar með starfsfólki kirkjunnar sem fyrst.
2. Umræður voru um framkvæmdir við kirkju og safnaðarheimili sem nú standa yfir.
Byggingarnefnd kirkjunnar þeir Guðmundur Búason, Þórður Stefánsson og Sigurjón Erlingsson lögðu fram fundargerðir 13. – 18. fundar nefndarinnar, sem haldnar voru á tímabilinu 6. maí – 12. ágúst. Þar kom m.a. fram: Á fundi 9. júní var ákveðið að auglýsa útboð á nýbyggingu milli turns og safnaðarheimilis. Á fundi 5. júlí voru tilboð lögð fram þau voru.:
1. Vörðufell – Valdimar Bjarnason Kr. 7.018.750,-
2. Smíðandi - 8.015.613,-
3. Selárbyggingar ehf. – Hákon Gunnlaugsson- 8.998.230,-
4. Selhús – Baldur Pálsson - 9.193.875,-
5. T.A.P. - Agnar Pétursson - 9.738.401,-
6. Byggingafélagið Laski ehf. - 11.984.505,-
Kostnaðaráætlun Verkfræðistofu Suðurlands er - 9.367.300,-
Samþykkt að taka tilboði Vörðufells sem er um 75% af kostnaðaráætlun. Skiladagur verksins er 20. ágúst 2010. Í verkinu er gröftur, fylling og uppsteypa.
Á fundi 23. júlí voru samþykkt húsgagnakaup í skrifstofur kr. 1.777.635,- .
Verkstaða 18. ágúst: Nýbygging – verið er að fylla í undir steypingu gólfplötu.
Skrifstofuálma: Eftir er að leggja parket á gólf og setja í hurðir, en afhending hurða tefst til næstu mánaðarmóta þar sem nýsmíðaðar hurðirnar brunnu í verkstæðisbruna Selós í sumar og verður að smíða nýjar. Verðtilboð eru að koma inn í; glugga, hurðir, gler og þakgerð nýbyggingar.
Fundinn sátu: Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Guðmundur Búason, Björn Gíslason, Þórður Stefánsson og Sigurjón Erlingsson fundarritari. Fjarverandi voru vegna ferðalaga: Erla Kristjánsdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir og Sigríður Bergsteinsdóttir.
Fundur sóknarnefndar með presti og sóknarpresti ásamt starfsfólki Selfosskirkju í lofti safnaðarheimilis 26. ágúst 2010. Hófst kl. 19:05
1. Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund og kynnti síðan og las upp, „Ákvörðun biskups um skiptingu starfa í Selfossprestakalli frá 11. maí 2010.
2. Samþykkt að hafa sameiginlegan kvöldverð (grill) í félagsheimili hestamanna föstud. 3. sept. nk.
3. Samþykkt að stefna að septembertónleikum og leita eftir stuðningi við þá. Ákveðið er að hafa aðventutónleika 2. sunnud. í aðventu.
Fundinn sátu: Eysteinn Ó. Jónasson, Hjörtur Þórarinsson, Óskar Hafsteinn Óskarsson, Kristinn Á. Friðfinnsson, Friðsemd Eiríksdóttir, Björn Ingi Gíslason, Sigríður Bergsteinsdóttir, Sólrún Guðjónsdóttir, Kristinn Pálsson, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Jörg E. Sondermann, Gunnþór Gíslason, S. Guðný Ingvarsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
Fundi slitið kl. 19:25
Fundur sóknarnefndar í rislofti safnaðarheimilis 19. sept. 2010.
Hófst kl. 12:20.
Fundarefni er skipting á þeim tveimur skrifstofum sem nú eru tilbúnar í safnaðarheimili.
Sóknarnefnd samþykkti samhljóða að halda sig við þær teikningar sem gerðar voru og samþykkta í september 2009, þar sem ákveðið er að prestur hafi sína skrifstofu í suðurenda skrifstofuálmu, en sú skrifstofa sem merkt var djákna verði skrifstofa sóknarprests.
Fundi slitið kl. 13:00
Eftirtaldir sátu fundinn: Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Þórður Stefánsson, Björn Ingi Gíslason, Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar.
Fundur sóknarnefndar 23. sept. 2010 í rislofti safnaðarheimilis. Hófst kl. 17:00
Form. Eysteinn Ó. Jónasson setti fund. Hann sagði frá því að sl. þriðjudag voru prestunum tveimur afhentar skrifstofur sínar í safnaðarheimili. Síðan bað hann starfsfólk að segja frá starfi sínu.
1. Ninna Sif Svavarsdóttir sagði frá æskulýðsstarfinu, barnastarfinu í kirkjunni, kirkjuskóla ofl. Þá óskaði hún eftir styrk frá Selfosskirkju til ferðar til Akureyrar á æskulýðsmót þar sem þátttakendur yrðu 30 – 40.
2. Samþykkt samhljóða styrkur kr. 2.500,- til hvers þátttakanda.
3. Jörg Sondermann sagði frá tónlistar- og söngmálum í kirkjunni. Fyrirhugað er að barnakór frá Berlín komi 17. október og verði með tónleika í kirkjunni. Tími tónleika verði athugaður nánar.
4. Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson sóknarprestur dreifði á fundinum bækling: „Siðareglur þjóðkirkjunnar“. Síðan fór hann af fundi.
5. Þórður Stefánsson sagði frá gangi mála í nýbyggingu. Verið er að slá upp fyrir útitröppum og þakefni er nær tilbúið.
6. Eygló Gunnarsdóttir sagði frá starfi því sem hún hefur umsjón með.
7. Sr. Óskar H. Óskarsson lagði fram starfsáætlun fyrir haustmisserið 2010 en hún er niðurstaða af 3 starfsmannafundum að undanförnu. Áætlunin nær til næstu áramóta. Sr. Óskar kynnti síðan vetrarstarfið nánar.
Fundi slitið kl. 18:00 Undir fundargerð skrifuðu: Eysteinn Ó. Jónasson, Hjörtur Þórarinsson, Óskar Hafsteinn Óskarsson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Sigríður Bergsteinsdóttir, Gunnþór Gíslason, Jörg E. Sondermann, Þórður Stefánsson og fundaritari Sigurjón Erlingsson.
Eygló Gunnarsdóttir djákni sat einnig allan fundinn, sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson hvarf af fundi eins og nefnt hefur verið og Ninna Sif Svavarsdóttir fór er hún hafði lokið sínu erindi.
Þ I N G M Á L A F U N D U R
Kirkjuþingsfulltrúar 9. kjördæmis á kirkjuþingi, Suðurprófastsdæmi, boða hér með til þingmálafundar í Víkurskála í Vík í Mýrdal laugardaginn 25. september nk. kl. 13.30.
Á fundinum verða kynnt og rædd fyrirhuguð þingmál á kirkjuþingi, sem kvatt hefur verið saman 13. nóvember 2010. Um er að ræða mál, sem flutt verða á þinginu af hálfu kirkjuráðs, forsætisnefndar kirkjuþings og þingfulltrúa kjördæmisins.
Þingmálafundir eru nýjung í starfi kirkjuþingsfulltrúa. Þeir eru til þess ætlaðir að áhugamönnum um störf og stefnumörkun þjóðkirkjunnar gefist tækifæri til að kynna sér og ræða fyrirhuguð þingmál og hafa þannig áhrif á framsetningu þeirra og framgang á kirkjuþingi. Til þessa þingmálafundar eru sérstaklega boðaðir allir prestar og sóknarnefndarmenn Suðurprófastsdæmis en fundurinn er jafnframt opinn öðrum.
Kaffiveitingar verða á þingmálafundinum.
Þingmálafundur í Vík í Mýrdal laugardaginn 25. september 2010.
Þetta var 1. þingmálafundurinn á landinu, en eins og fram kemur í fundarboðinu hér að ofan eiga þeir að gefa áhugamönnum um störf og stefnumörkun þjóðkirkjunnar tækifæri til að hafa áhrif á framsetningu þingmála kirkjuþings, en næsta þing hefur verið kvatt saman 13. nóvember n.k.
Tveir fulltrúar sóknarnefndar Selfosskirkju mættu á fundinn, þau Eysteinn Ó. Jónasson og Sigríður Bergsteinsdóttir. Hvorugur prestur prestakallsins sá sér fært að koma á fundinn og aðeins örfáir leikmenn Suðurlandsprófastsdæmis.
Eftir að sr. Kristján Björnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjum sem situr í kirkjuráði hafði útskýrt tillögur um breytingar á þingsköpum sem leggja á fyrir þingið bað Sigríður Bergsteinsdóttir um orðið og benti á lagagreinar sem hún taldi að hefðu verið brotnar á síðasta kirkjuþingi þegar þingið ákvað sameiningu Hraungerðisprestakalls og Selfossprestakalls. Þessar spurningar vöktu nokkur viðbrögð og voru tilefni sumra breytinga kirkjuráðs einmitt settar fram vegna þessara atriða sem Sigríður benti á. Nokkur tækifæri buðust Eysteini og Sigríði til að skýra mál Selfosssóknar og var greinilegt að fundarmenn voru flestir á sama máli og fram kom í þeirra flutningi.
Tillögur kirkjuráðs eiga, ef þær ná fram að ganga á þinginu, að koma í veg fyrir sömu mistök og urðu á þinginu í nóvember 2009.
EÓJ.
Fundur sóknarnefndar 3. október 2010 í skrifstofu djákna í Selfosskirkju.
Hófst kl. 10:00
1. Rædd voru ýmis mál í starfi Selfosskirkju. Framkvæmdir innan og utanhúss.
2. S. Guðný Ingvarsdóttir lagði áherslu á að lýsing kirkjunnar utanhúss yrði bleik að lit í október. [Innskot EÓJ.: „Kom í ljós að búið var að setja bleiku „filterana“ á af krabbameinsfélaginu, en deginum öryggi höfðu slegið út kvöldinu áður. Var því snarlega kippt í liðinn].
3. Samþykkt að greiðslur til kirkjukórs verði athugaðar í samræmi við fyrri samþykktir
17. fundur sóknarnefndar 19. október 2010 í rislofti safnaðarheimilis.
Hófst kl. 17:00
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund.
1. Staða byggingaframkvæmda. Guðmundur Búason lagði fram og kynnti stöðu fjármála varðandi framkvæmdir og stöðu rekstrarreiknings í október 2010.
Nýbygging og skrifstofur: Kostnaður 2009 7.281.342,-
Kostnaður í október 2010 30.350.379,-
Samtals.: 38.117.325,-
Umræður voru um framkvæmdir. Stefnt er að því að nýbygging verði tekin í notkun síðar í haust.
Fundi slitið kl. 18:30
18. fundur sóknarnefndar í rislofti safnaðarheimilis 16. nóvember 2010.
Hófst kl. 1700
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund. Sóknarprestur sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson boðaði forföll.
1. Staða framkvæmda við býbyggingu. Guðmundur Búason gerði grein fyrir stöðu mála. Byggingin er nú fokheld og búið að saga þau 5 dyraop sem við eiga. Lagðar voru fram 19. – 25. fundargerð byggingarnefndar kirkjunnar. Rætt var um að stefna að því að taka nýja húsnæðið í notkun fyrsta sunnudag í aðventu 28. nóvember nk. þótt það sé ekki að öllu fullgert.
2. Sr. Óskar H. Óskarsson sagði frá ýmsu í starfi kirkjunnar. Heimsóknir gesta, tónleika og starfið framundan.
3. Rætt var um undirbúning að fjárhagsáætlun næsta árs. Eysteini, Guðmundi og Sigurjóni falið að athuga málið, þ.á.m. starfsmannahald ofl.
18. fundur sóknarnefndar í rislofti safnaðarheimilis 16. nóvember 2010
hófst kl. 17:00
Form. Eysteinn Ó. Jónasson setti fund. Sóknarprestur sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson boðaði forföll.
1. Staða framkvæmda við nýbyggingu. Guðmundur Búason gerði grein fyrir stöðu mála. Byggingin er nú fokheld og búið að saga þau 5 dyraop sem við eiga. Lagðar voru fram 19. – 25. fundargerð byggingarnefndar kirkjunnar. Rætt var um að stefna að því að taka nýja húsnæðið í notkun fyrsta sunnudag í aðventu, 28. nóvember nk. þótt það sé ekki að öllu fullgert.
2. Sr. Óskar H. Óskarsson sagði frá ýmsu í starfi kirkjunnar. Heimsóknir gesta, tónleika og starfið framundan.
3. Rætt var um undirbúning að fjárhagsáætlun næsta árs. Eysteini, Guðmundi Búasyni og Sigurjóni falið að athuga málið. Þar á með tal starfsmannahald og fleira.
[Eftirfarandi innskot EÓJ um umræður eftir fund.
Þegar fundi var að ljúka um kl. 18 kom Björn Ingi Gylfason á fundinn og bar upp fyrirspurn um framkvæmd tónleikahalds á „*Frostrósir“ sem rætt var um í lok fundar fyrir mánuði, en mönnum þótti að þarna væri kominn nýr flötur á tónleikahaldi í kirkjunni. Stefna Selfosskirkju hefur ætíð verið sú að styðja undir tónleikahald fyrir kóra úr héraði fyrir sóknarbörn og taka ekki meiri gjöld af flytjendum en bæri við kostnaði þrifa og frágang kirkjuvarðar eftir slíkar athafnir. Þótti fundarmönnum að nú væri komið fram yfir þann þröskuld sem miðað hefði verið við og að nú þyrfti að huga hvort ekki þyrfti að setja kirkjuverði ákveðnari kosti varðandi slíkar uppákomur. Voru menn sammála um að nú yrði sóknarnefnd að koma sér saman um ákveðnara skipulag varðandi greiðslur og annað það sem að húsnæði snérist. Ákveðið að koma saman hið fyrsta og ákveða fyrirkomulag slíkra athafna.]
Fundi slitið kl. 18:20
19. fundur sóknarnefndar 21. desember 2010 í sal safnaðarheimilis. Hófst kl. 1705
1. Eysteinn Ó. Jónasson form. sagði frá vígslu tengibyggingar milli turns og kirkju sem fram fór strax eftir messu og innsetningu prestanna fyrsta sunnudag í aðventu 28. nóvember. Þar sá prófastur suðurprófastdæmis sr. Halldóra Þorvarðardóttir um innsetningu og prédikun. Einnig sá hún um vígslu tengibyggingar eftir að yngri barnakór hafði sungið undir stjórn Edit Molnár.
Formaður sóknaarnefndar flutti síðan stutt ávarp og rakti í örfáum orðum tilurð og gang framkvæmdanna. Loks tók Valdimar Bjarnason frá Vörðufelli til máls, sem sá um framkvæmdirnar, og gaf hann kirkjunni veggklukku sem nú hangir uppi í tengibyggingunni. Fjöldi kirkjugesta var viðstatt athöfnina og þáði síðan kaffi og meðlæti, sem verktakarnir buðu upp á.
2. Við messu sl. sunnudag gáfu þau hjón Guðni Andersen og Björg Óskarsdóttir kirkjunni viðhafnarstól (antik).
3. Eysteinn sagði frá viðræðum við starfsfólk sbr. fundargerð síðasta fundar.
4. Rætt var um framlag Selfosskirkju í „sjóðinn góða“ sem er á vegum Rauða krossins. Samþykkt að úthluta sjóðnum úr hjálparsjóði Selfosskirkju 1% af tekjum, eða um 400 þús. kr. Einnig var samþ. að úthluta hjálparsjóði Kirkjunnar 1% af tekjum eða um 400 þús. kr.
5. Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson færði Eygló Gunnarsdóttur djákna sérstakar þakkir fyrir frábært starf við úthlutun úr hjálparsjóðum og tóku fundarmenn undir þær þakkir. Þá kom fram að ræða þyrfti frekar með hvaða hætti úthlutun úr þessum sjóðum fer fram í framtíðinni.
6. Sr. Óskar skýrði frá því að Kristinn Jósepsson sem rekur útfararþjónustuna „Fylgd“ hefði boðist til að sjá um blóm á altari kirkjunnar í boði fyrirtækisins.
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson flutti fundarfólki þakkir fyrir samstarfið á liðnu ári.
Fundi slitið kl. 18:01 og auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar sátu eftirtaldir fundinn. :
1. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis 18. janúar. Hófst kl. 17:00
Form. Eysteinn Ó. Jónasson setti fund og bauð fundarmenn velkomna og þá sérstaklega starfsfólk sem boðið var á fundinn.
1. Edit Molnár lagði fram og skýrði bréf hennar til sóknarnefndar sem varðar sparnaðarleiðir fyrir kirkjuna, sbr. 3. lið á 18. fundi sóknarnefndar 16. nóv. sl. . Hún þakkaði gott samstarf.
2. Gunnþór Gíslason kirkjuvörður lagði fram leigusamning frá Ísafjarðarkirkju sem hann fékk eintak af varðandi samninga um leigu á húsnæði kirkjunnar til tónleikahalds. Samningur þessi gæti verið til viðmiðunar. Umræður voru um gjald fyrir tónleikahald. Tillaga um leigugjald v/tónleikahalds og annarra viðburða í kirkju, sem ekki tengist beinu kirkjuhaldi. „Sóknarnefnd samþykkir að leigugjald v/tónleikahalds og annarra viðburða í kirkju, sem ekki tengist beint kirkjuhaldi skuli vera 10% af innkomu tónleikahaldara, en þó að lágmarki kr. 30.000,- . Samþykkt samhljóða.
3. Þá sagði Gunnþór frá því að kirkjan hefði verið lánuð fyrir kaþólskar messur, án endurgjalds. Messur þessar hafa verið einu sinni í mánuði. „Samþykkt að greitt verði fyrir ef til fellur sérstakur kostnaður“.
4. Þá afhenti Gunnþór sem gjöf til kirkjunnar allar teikningar af framkvæmdum við nýjasta kirkjugarðinn sem og annað það sem Landform hefur unnið fyrir Selfosskirkju á liðnum árum. Gefandi er „Landform“. Eintak þetta verður varðveitt í kirkjunni.
5. Eysteinn dreifði á fundinum eintaki af reglum kirkjunnar um „kosningar til sóknarnefnda ofl. árið 2011.“
6. Þá las Eysteinn upp eftirfarandi bréf til sóknarnefndar Selfosssóknar dags. Reykjavík 11. janúar 2011.
„Með vísan til 5. mgr. 13.gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, er þess farið á leit að sóknarnefnd Selfosssóknar, Suðurprófastdæmi upplýsi kirkjuráð um það hvaða aðgerða sóknarnefndin hafi gripið til í tilefni af úrskurði úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli nr. 1/2010;
Jóhanna Guðjónsdóttir og
Gunnþór Gíslason og Eysteinn Ó. Jónasson.
Ef um það er að ræða óskast gögn sóknarnefndar, sem kunna að liggja fyrir hvað varðar framkvæmd ofangreinds úrskurðar, td. fundargerðir eða bréf send kirkjuráði
Virðingarfyllst fh. kirkjuráðs
Guðmundur Þór Guðmundsson
frkv.stj. kirkjuráðs.“
Vegna bréfs þessa samþykkir sóknarnefnd eftirfarandi.
„Sóknarnefnd hefir engin gögn eða upplýsingar um mál þetta.“
Samþykkt samhljóða.
7. Dreift var á fundinum 26. og 27. fundi byggingarnefndar kirkjunnar. Guðmundur Búason sagði frá gangi mála og lagði fram eftirfarandi tillögu. „Sóknarnefnd samþykkir að hlutdeild kirkjugarðs í utanhússframkvæmdum við Selfosskirkju á árinu 2010 skuli vera kr. 5.000.000,- Samþykkt.
8. Guðmundur sagði frá bréfi sem hann hefur ritað, dags. 7. janúar 2011, vegna umsóknar Selfosskirkju í jöfnunarsjóð þjóðkirkjunnar sem hefir verið hafnað. Byggingarnefnd Selfosskirkju hefir verið boðið á fund í kirkjuhúsi í Rvk., vegna bréfs þessa,nk. fimmtudag.
9. Þá lagði Guðmundur fram og skýrði blað sem hann hefir gert um tekjurýrnun Selfosskirkju 2008 – 2011 v/lækkunar sóknargjalda.
10. Sr. Óskar H. Óskarsson sagði frá ýmsu í starfi Selfosskirkju. Fyrirhugað er að landsmót æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar á næsta hausti verði á Selfossi.
11. Þá lagði sr. Óskar fram tillögu að stofnun tónlistar- og menningarsjóðs Selfosskirkju, sem útfærð er nánar í tillögunni. Tillagan var rædd og fékk jákvæðar undirtektir. Rætt var um að vel færi á því að tillagan kæmi fram og yrði rædd á aðalsafnaðarfundi. Sr. Óskar lýsti áhyggjum af verulega dvínandi messusókn á sl. hausti, miðað við sama tímabil í fyrra. Sr. Kristinn ræddi um messusóknina og voru nokkrar umræður í sóknarnefnd um þetta.
12. Rætt um starfsmannamál kirkjunnar, en Eysteini, Guðmundi og Sigurjóni var falið að kanna þessi mál sbr. fundarg. 16/11 2010 lið 3 . Guðmundur Búason sagði frá því að rætt hefir verið við starfsfólk. Hann skýrði hugmyndir um breytingar. Samþ. að fela þeim þremur að gera tillögur í málinu.
Fundi slitið kl. 20:00 en auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar sátu eftirtaldir fundinn. :
2. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis 26. janúar. Hófst kl. 18:00.
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund.
1. Umræður voru um ýmsa þætti í kirkjustarfinu.
2. Eysteinn gerði grein fyrir viðtölum við starfsfólk kirkjunnar og breytingar á starfshlutfalli „sbr. 12 lið í síðustu fundargerð.
Fundi slitið kl. 19:04
Auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar sátu eftirtaldir fundinn: Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Björn Ingi Gíslason, Þórður Stefánsson, Sigríður Bergsteinsdóttir og varamaðurinn Sigurður Sigurjónsson sem þurfti að hverfa af fundi áður en undirritun fór fram.
3. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis 2. febrúar. Hófst kl. 18:00
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund.
1. Rætt var um messusókn. Var sú umræða í framhaldi af fyrri umræðu um sama mál í 11. lið fundar 18. janúar s.l.
2. Rætt var um skrifstofur prestanna í Selfosskirkju. Um miðjan september sl. voru prestunum tveimur afhentir lyklar að þeim tveimur skrifstofum sem þá voru tilbúnar. Fékk þar hvor prestur sinn lykil. Sóknarprestur hefir ekki nýtt þá skrifstofu sem honum var úthlutuð en hefir haft skrifstofuaðstöðu í skrúðhúsi kirkjunnar. Aðspurður segist hann vera að bíða eftir bréfi frá biskupi varðandi bréf það sem formaður sóknarnefndar lét fylgja afhendingu lykilsins.
3. Rætt var um bréf þau sem sóknarprestur hefir sent að undanförnu til foreldra fermingabarna. Fermingarfræðsla og fermingar eru samstarfsverkefni prestanna tveggja.
Fundi slitið kl. 20:00
Auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar sátu eftirtaldir fundinn.: Óskar Hafstein Óskarsson, Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Guðmundur Búason, Kristinn Á. Friðfinnsson, Þórður Stefánsson, Erla Rúna Kristjánsdóttir og Sigríður Bergsteinsdóttir
4. fundur sóknarnefndar 2011 15. febrúar haldinn í rislofti safnaðarheimilis. Hófst kl. 17:00
Form. Eysteinn Ó. Jónasson setti fund og gaf sr. Óskari orðið.
1. Sr. Óskar sagði frá fyrirhuguðu ferðalagi fermingarbarna að Skálholti í byrjun mars. Sr. Óskar óskaði eftir stuðningi við hluta af kostnaði eins og verið hefir undanfarin ár. Samþykkt samhljóða.
2. Jörg Sondermann ræddi um starf sitt og þá fyrirætlun að starf hans verði frá vordögum 75% starf í stað 100% . Kvaðst hann vilja vinna sem næst í óbreyttu starfi þrátt fyrir þessa minnkun á starfshlutfalli.
3. Eygló Gunnarsdóttir djákni óskaði eftir stuðningi vegna kostnaðar við rútuferð barna frá Reykjavík til Selfoss vegna ferðar þeirra í Vatnaskóg. Samþykkt samhljóða.
4. Þá flutti Eygló ósk frá Sáru Ómarsdóttur hvort hún fengi aðstöðu í kirkjunni, eða safnaðarheimili, fyrir fræðsluerindi um fjármál heimila. Hún sinnir þessu á vegum Rauða krossins. Tekið var jákvætt í þetta erindi.
5. Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson kynnti bók sem Selfosskirkja fékk afhenta skv. lögum frá 1985. Í bókina skal rita heimildir um allt sem fram fer í starfinu eins og nánar er ákveðið í lögunum. Færslur í bók þessa hafa ekki farið fram síðan 2002. Lýsti sr. Kristinn áhuga á að fært yrði í bók þessa eins og til er ætlast.
6. Eysteinn Ó. Jónasson kynnti bréf sem hann hefir ritað til sr. Kristins Ág. Friðfinnssyni sóknarpresti svohljóðandi:
„Selfossi 15. febrúar 2011. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Bréf það sem undirritaður lét fylgja afhendingu lykla að skrifstofum þann 19. sept. 2010 var alls ekki tilhlýðilegt. Biðst undirritaður velvirðingar á því og biður þig vinsamlegast að líta svo á að innihald þess sé dregið til baka.
Með vinsemd og virðingu
Eysteinn Ó. Jónasson form. sóknarnefndar Selfosskirkju.
7. Þá sagði Eysteinn frá því að hann ásamt Guðmundi Búasyni og Sigurjóni Erlingssyni hefðu átt fund með biskupi í síðustu viku.
8. Rætt var um að stefna að aðalsafnaðarfundi 20. mars nk. að öllu óbreyttu.
Fundi slitið kl. 18:15. Fundargerð undirrituðu : Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Kristinn Ág. Friðfinnsson, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Sigríður Bergsteinsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
Eins og sjá má á fundargerð voru Eygló Jóna Gunnarsdóttir djákni, Jörg Sonderman og Edit stjórnandi barna og unglingakóra með á fyrrihluta fundar, en fóru áður en undirritun fór fram.
5. fundur sóknarnefndar 2011 í rislofti safnaðarheimilis 15. febr. 2011 hófst kl. 18:25 .
Varaformaður Björn Ingi Gíslason setti fund og kynnti fundarefni sem eru tilmæli þau sem úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar hefir beint til sóknarnefndar að hún áminni kirkjuvörð og formann sóknarnefndar. Sóknarnefnd ræddi síðan málið.
Björn bauð síðan kirkjuverði og formanni sóknarnefndar að koma inn á fundinn og gera grein fyrir sínum sjónarmiðum, sem þeir gerðu. Síðan yfirgáfu þeir fundinn.
Afgreiðsla sóknarnefndar fer hér á eftir:
Í bréfi frá Guðmundi Þór Guðmundssyni frkv.stj. kirkjuráðs fh. kirkjuráðs dags. 20. jan. 2011 er farið þess á leit við sóknarnefnd Selfosssóknar að hún upplýsi um framkvæmd sóknarnefndar vegna úrskurðar úrskurðanefndar þjóðkirkjunnar í máli nr. 1/2010, en þar er ákveðnum tilmælum beint til sóknarnefndar. Sóknarnefnd hefur rætt mál þetta og kynnt sér að auki „Starfsreglur um úrskurðarnefnd og áfrýjunarnefnd þjóðkirkjunnar 730/1998 . Þá hefur sóknarnefnd kynnt sér „Siðareglur vígðra þjóna og annars starfsfólks kirkjunnar“ og farið yfir ráðningarsamning kirkjuvarðar.
Ljóst er að úrskurðarnefnd hafnar með öllu kröfum málshefjanda Jóhönnu Guðjónsdóttur á hendur kirkjuvarðar og formanns sóknarnefndar.
Þar sem kirkjuvörður og form. sóknarnefndar hafa með bréfi dags. 29. mars 2010 beðið málshefjanda afsökunar á því sem á milli ber vegna símtala 5. mars 2010 sér sóknarnefnd ekki ástæðu til sérstakra aðgerða af sinni hálfu í máli þessu.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 19:15. og undir þetta rita: María Kjartansdóttir, Friðsemd Eiríksdóttir, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Sigríður Bergsteinsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
6. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis 22. febrúar. Hófst kl. 18:05
1. Form. Eysteinn Ó. Jónasson kynnti gjöf sem afhent var í gær af Soroptimistafélaginu. Þetta er skjávarpi. Skjávarpinn tengist við tölvu. Eysteinn hefir flutt þakkir fyrir gjöfina og tekur sóknarnefnd undir þakkirnar.
2. Eysteinn lagði fram og dreifði fundarboði frá prófasti um héraðsfund í Suðurprófastsdæmi sem fram fer á Kirkjubæjarklaustri 26. mars nk.
3. Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson vakti máls á því að kjósa þyrfti fulltrúa frá Selfosssókn í fulltrúaráð hjálparstarfs kirkjunnar. Samþykkt að kjósa Eygló Gunnarsdóttur aðalmann og Sigríði Bergsteinsdóttur varamann.
4. Sr. Kristinn ræddi um bókasafn það sem nú er geymt í skrúðhúsi kirkjunnar og er m.a. safn úr eigu sr. Sigurðar Pálssonar sem gefið var Selfosskirkju. Skrá þyrfti safnið og hugsanlega hafa hluta þess aðgengilegan t.d. í miðrými.
5. Sr. Óskar H. Óskarsson vakti máls á bréfi frá biskupi dags. 11. febr. 2011 til sr. Kristins Ág. Friðfinnssonar. Ræddi sr. Óskar um þann hluta bréfsins sem að honum snýr. Guðmundur Búason, Sigríður Bergsteinsdóttir, Þórður Stefánsson, Björn Gíslason og Sigurjón Erlingsson ræddu málið við sr. Kristinn. Sr. Kristinn kvaðst myndi ræða þetta bréf við biskup.
Að þessari umræðu lokinni yfirgáfu þeir sr. Kristinn og sr. Óskar fundinn.
6. Guðmundur Búason kynnti bréf frá frkv.stj. kirkjuráðs, Guðmundi Þór Guðmundssyni þar sem Selfosskirkju er veitt 1 milljón kr. úr Jöfnunarsjóði sókna til nýbyggingar við kirkjuna.
8. Ákveðið að halda aðalsafnaðarfund sunnudaginn 13. mars eftir messu og súpu, eða fyrir miðjan marsmánuð eins og undanfarin 6 ár. (EÓJ).
Fundi slitið kl. 20:20 Undir fundargerð rituðu: Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Björn Ingi Gíslason, Þórarinn Stefánsson, Sigríður Bergsteinsdóttir auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar.
7. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis sunnud. 6. mars.
Hófst kl. 18:05
1. Form. Eysteinn Ó. Jónasson setti fund og ræddi fyrst um það sem áður hefir komið fram að Ninna Sif æskulýðsfulltrúi óskar eftir því að taka prestsvígslu og starfa áfram við Selfosskirkju skv. nánari samningum þar um, ásamt starfi í framhaldsskólum.
Ninna Sif var mætt á fundinn og skýrði stöðu sína. Samþ. að rita kirkjuráði bréf um þetta í samráði við Ninnu Sif. Hún hvarf síðan af fundi.
2. Umræður voru um bréf frá biskupi Íslands. Gerð var eftirfarandi samþykkt: „Sóknarnefnd hefir rætt bréf frá biskupi Íslands dagsett 1. febrúar 2011 til sr. Kristins Ág. Friðfinnssonar sóknarprests, sem sóknarnefnd var sent afrit af. Um bréfið vill sóknarnefnd taka fram eftirfarandi: Ljóst er að sóknarprestur hefir að undanförnu verið með margvíslegar umkvartanir við biskup vegna sr. Óskar H. Óskarssonar án vitundar sóknarnefndar og sr. Óskar. Rekur biskup þær kvartanir í bréfi sínu, en hafnar þeim síðan með öllu og hafnar því einnig að sr. Óskari verði veitt áminning eins og sr. Kristinn leggur til. Þá ítrekar biskup ákvörðun sína frá 11. maí 2010 að prestur skipuleggi starfsmannafundi í samráði við sóknarprest og sóknarnefnd.
Sóknarnefnd leggur áherslu á að það góða fyrirkomulag, sem verið hefur bæði um gerð starfsáætlana og starfsmannafundi í Selfosskirkju haldist óbreytt með umsjón sr. Óskars. Ljóst er að ákvörðun biskups frá 11. maí 2010 stendur óhögguð.“ Samþykkt samhljóða.
3. Guðmundur Búason gjaldkeri lagði fram fjárhagsáætlun Selfosskirkju fyrir árið 2011 og skýrði tölur nánar. Einnig lagði hann fram fjárhagsáætlun Hjálparsjóðs Selfosskirkju fyrir 2011 og áætlun kirkjugarðs. Rætt var um ýmis atriði í þessum áætlunum og áætlanir samþykktar.
4. Þá lagði Guðmundur fram áætlun frá Edith Molnár kórstjóra um kostnað á árinu 2011 fyrir barnakóra og unglingakór.
5. Rætt um aðalsafnaðarfund sem ákveðinn er 13. mars nk.
8. fundur 2011 : Aðalsafnaðarfundur fyrir árið 2010 haldinn í safnaðarheimili selfosskirkju 13. mars 2011 að lokinni guðsþjónustu. Hófst kl. 1230 .
1. Formaður sóknarnefndar Eysteinn Ó. Jónasson minntist í upphafi fundar sr. Sigurðar Sigurðarsonar vígslubiskups í Skálholti, áður sóknarprests á Selfossi sem lést á sl. ári. Hann bað fundarmenn að rísa úr sætum í virðingarskyni við hinn látna.
Formaður gerði síðan tillögu um Þorlák Helgason sem fundarstjóra og Sigurjón Erlingsson sem fundarritara. Jóhanna Guðjónsdóttir gerði athugasemd og mótmælti Sigurjóni sem fundarritara. Að því undanteknu voru þessir starfsmenn fundarins samþykktir án atkvæðagreiðslu.
2. Eysteinn formaður flutti síðan skýrslu um starfið á liðnu ári. Rakti hann þar m.a. almennan safnaðarfund sem haldinn var 24. janúar 2010 að ósk sóknarbarna, val á nýjum presti, breytingar í safnaðarheimili þar sem gerðar voru tvær skrifstofur í stað einnar og nýframkvæmdir – þ.e. 100m2 nýbyggingar milli kirkjuturns og safnaðarheimilis.
Þvínæst flutti sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson sóknarprestur skýrslu um starfið á liðnu ári. Messur voru 67, almennar guðsþjónustur 196. Helgistundir 60 – þar meðtaldar skírnir. Útfarir 37, hjónavígslur
Athafnir alls 325 á árinu með 16.383 viðkomum gesta. Til altaris gengu 1983. Messusókn var að meðaltali 129.
Þá gat hann þess að Glúmur Gylfason fyrrv. organisti kirkjunnar hefði afhent kirkjunni fyrstu eintökin af nýprentaðri tíðasöngsbók sem Glúmur hefur unnið að.
Sr. Óskar H. Óskarsson sagði frá kvöldmessum með listafólki, messum með ýmsum félagshópum, sálmakvöldum, fræðslukvöldum og málþingi um kirkju og skóla. Þá minntist hann á æskulýðsstarfið undir stjórn æskulýðsfulltrúa, Ninnu Sifjar.
Eygló Gunnarsdóttir djákni flutti skýrslu um starf sitt sem er að nokkru sameiginlegt með Ninnu Sif. Þar sagði Eygló frá m.a. sunnudagaskólanum, kirkjuskóla fyrir 6 – 9 ára börn í grunnskólunum. Foreldramorgnar einu sinni í viku. Hún hefur heimsótt Dagdvöl aldraðra vikulega. Þá sagði hún frá 12 spora námskeiðunum og tíðasöngnum á morgnana. Þá hefur Eygló séð um úthlutun úr „Sjóðnum góða“. 138 fjölskyldur fengu Bónuskort úr þessum sjóði. Hún hefir heimsótt elli- og hjúkrunarheimilin á svæðinu.
Jörg E. Sondermann organisti sagði frá kóra og tónlistarstarfi, barna- og unglingakórunum, septembertónleikum og orgeltónleikum.
Þá gaf Eysteinn formaður orðið laust um framkomnar skýrslur.
Jóhanna Guðjónsdóttir gerði athugasemd við að ekki hefði verið gerð nógu góð skil á orðum sr. Úlfars Guðmundssonar á síðast aðalsafnaðarfundi. Þá las hún upp eftirfarandi bókun sem hún óskaði að færð yrði í fundargerðabók. : „Störf sóknarnefndar undanfarin misseri bera hvorki með sér sterka siðferðisvitund né réttlæti. Hún gerir það sem henni ber ekki að gera og hún skynjar ekki hvað skiptir máli. Siðferði snýr að venjum og reglum manna um hegðun og ákveðnar viðmiðanir. Siðareglum er ætlað að standa vörð um verðmæti og vísa okkur á veg dyggða. Oftast áttar fólk sig á siðferðisbrotum eftir að þau hafa verið framkvæmd. Emanuel Kant sagði: Breyttu ævinlega eftir þeirri lífsreglu sem þú getur viljað að verði almenn lög. Því má spyrja:
- viljum við að það verði almenn lög að sóknarnefnd skilyrði lykla að skrifstofum safnaðarins með þeim hætti að sóknarprestur sjái sér ekki fært að þiggja aðstöðuna?
- viljum við að það verði almenn lög að sóknarnefnd taki sér vald stjórnvalds sem hún hefur ekki, og brjóti jafnframt þau stjórnsýslulög sem stjórnvaldi ber að fylgja?
Nú spyrja trúlega einhverjir hvað hún á við? Jú, Ég er þolandi bæði trúnaðarbrots og siðferðisbrots tveggja starfsmanna kirkjunnar; Eysteins formanns og Gunnþórs kirkjuvarðar. Það var úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar sem dæmi málið og í kjölfarið beindi úrskurðarnefndin þeim tilmælum til sóknarnefndar að hún áminnti Eystein og Gunnþór vegna háttsemi þeirra og þeirra brota sem í henni fólust. Í stað þess að fara að tilmælum úrskurðarnefndar um áminningu hefur sóknarnefndin hagað sér eins og hún sjálf sé stjórnvald. Hér er sóknarnefndin komin langt af veg. Henni ber að hlýða æðra stjórnvaldi. Hún hefur ekki val eða vald. Hún getur ekki breytt niðurstöðu þess dómsvalds sem úrskurðarnefndin er. Þegar sóknarnefnd gerði sig að stjórnvaldi þann 15. febrúar sl. gaf hún engan gaum að þeim reglum sem stjórnvaldi ber að fylgja. Hún brýtur jafnræðisregluna með því að bjóða einungis gerendum máls að veita upplýsingar en ekki þolenda. Nefndin braut líka rannsóknarregluna með því að halda því fram að öllum kröfum þolenda hafi verið hafnað. Það er ekki rétt, bæði Eysteinn og Gunnþór voru fundnir sekir um trúnaðarbrot og siðferðisbrot. Það er kjarni þessa máls.
Úrskurðarnefnd er stjórnvald sem hefur sambærilega stöðu og héraðsdómur. Tökum dæmi. Jón Jónsson er rændur um miðjan dag. Hann kærir til lögreglu og bæði hann og meintur ræningi gefa vitnisburð. Seinna dæmir héraðsdómur ræningjann til fangelsisvistar. Þá gefur fangelsisstjóri ræningjanum kost á að segja sína sögu. Jón fær hvorki að segja sína sögu né að heyra hvað ræninginn hafði fram að færa. Í framhaldi náðar fangelsisstjóri ræningjann og hunsar þar með dóm héraðsdóms. Miðað við málsmeðferð sóknarnefndar hinn 15. febrúar þá væri þessi afgreiðsla fangelsisstjóra rétta leiðin. Er einhver hér inni sem heldur því fram að fangelsisstjóri hafi vald til þess að breyta niðurstöðu héraðsdóms? Er einhver sem telur að fangelsisstjóri sé stjórnvald?
Það þarf ásetning til þess að vera siðferðisvera. Maður sem svíkur eigin vitund veit að hann er ekki traustsins verður. Hér í þessari kirkju eigum við að geta leitað og fundið andleg gæði. Þau eiga rætur í huganum, þau eru ótakmörkuð, eilíf og um þau ríkir engin samkeppni. Þjóðkirkjan er frjálst og sjálfstætt trúfélag með skyldur við alla þjóðina. Þetta er kirkjan mín. Hér eiga öll sóknarbörn að upplifa skjól í meðbyr sem mótlæti. Ég þarf ekki að ávinna mér rétt til þess að tjá áhyggjur mínar yfir störfum sóknarnefndar.
En hvað ræður för? Ég hef ígrundað þessa spurningu í hart nær 17 mánuði. Ég er enn þeirrar skoðunar að störf sóknarnefndar snúist um sterkt samstarf um rangar áherslur. Gagnrýnin umræða er hvorki sýnileg né áhersla á hvað sé sókninni og sóknarbörnum fyrir bestu. Nefndin hefur lengi borið merki valdníðslu sem á ekkert skylt við kristið þjónustuhlutverk kirkjunnar. Nefndin hefur tekið sér vald sem hún hefur ekki. Það er ekki siðferðislega verjandi að hún sitji áfram. Samhljóða samþykktir gegn lögum og almennum siðferðisviðmiðunum krefjast þess að öll sóknarnefndin víkji sæti.“
Sigurjón Erlingsson gerði athugasemdir við málflutning Jóhönnu og benti á að aðeins hefði verið um tilmæli að ræða til sóknarnefndar. Hann vísaði til afgreiðslu biskups frá 21. apríl sl. Þar sem segir að Jóhanna „hafi fengið afsökunarbeiðni frá gagnaðilum, (þ.e. Gunnþóri og Eysteini) því teldist málinu lokið og að biskup teldi ekki ástæðu til frekari afskipta hans af málinu.“ Þá benti Sigurjón á afgreiðslu kirkjuráðs frá 2. mars sl. þar sem segir: „Þar sem ákvæði 12. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar kveður einungis á um að úrskurðarnefnd geti „lagt til“ að veita áminningu verður ekki séð að sóknarnefnd sé beinlínis skylt að fara að tilmælum úrskurðarnefndar í framangreindum úrskurðarorðum. Kirkjuráð telur þar af leiðandi ekki efni til frekari aðgerða.“
Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson ræddi um ályktun sóknarnefndar um bréf biskups til sr. Kristins (dags. 1. febr. 2011) og átaldi ályktun sóknarnefndar um málið.
Jóhanna Guðjónsdóttir ræddi um úrskurðinn og las upp afsökunarbeiðni þeirra Gunnþórs og Eysteins. Taldi hún hana ekki fullnægjandi.
Fundarstjóri úrskurðaði að frekari umræður um þetta mál færi fram undir liðnum „önnur mál“.
3. Guðmundur Búason gjaldkeri flutti reikninga.
Rekstrarreikningur Selfosskirkju Tekjur............ 40.150.808,- Tekjuafgangur........ 110.912,-
Efnahagsreikningur ´´ Eignir alls.... 325.932.742,- Í sjóði....................... 7.323.202,-
Rekstrarreikningur Kirkjugarðs Tekjur............. 7.511.8103- Gjöld 14.283.637,- Mism: 5.787.495,-
Efnahagsreikningur ´´ Í sjóði ............ 14.689.920,- Skuldir og eigið fé: 15.025.920,-
Hjálparsjóður Selfosskirkju: Tekjur.................... 72.504,- Gjöld: 746.248,- Í sjóði 3.435.947,-
4. Eysteinn Ó. Jónasson gerði grein fyrir fundum héraðsnefndar. Ekkert var rætt um 4. lið fundarins hvað varðar „Ákvörðun um meirihátta framkvæmdir og framtíðarskuldbindingar“ þar sem engar ákvarðanir lágu fyrir þar um.
Guðmundur Búason sagði frá framkvæmdum liðins árs og gerði grein fyrir kostnaðartölum.
Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson ræddi um bókasafn sr. Sigurðar Pálssonar sem börn hans gáfu kirkjunni og að hann væri að athuga með skráningu þess. Þá minntist hann á símamál kirkjunnar sem ágreiningur var um á sl. vori.
Fundarstjóri bar upp reikningana til samþykktar og voru þeir samþykktir samhljóða.
5. Kosning hluta sóknarnefndarmanna og varamanna til 4ra ára. Úr stjórn eiga að ganga nú: Friðsemd Eiríksdóttir, Björn Gíslason, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Guðmundur Búason og Sigríður Bergsteinsdóttir. Þau gáfu kost á sér áfram að undanskilinni Friðsemd Eiríksdóttur.
Fundarstjóri lýsti eftir tillögum úr sal. Bára Gísladóttir lýsti yfir framboði sínu. Þórir Haraldsson gerði tillögu um Grím Hergeirsson og Guðrúnu Tryggvadóttur.
Leynileg kosning fór nú fram um 5 aðalmenn. Atkvæði féllu þannig :
1......... Guðmundur Búason ........ 56 atkvæði.
2......... Grímur Hergeirsson.......... 46 atkvæði.
3. – 4... Bára Gísladóttir ................ 45 atkvæði.
3. – 4. . Björn Gíslason ................. 45 atkvæði.
5......... Sigríður Bergsteinsdóttir... 42 atkvæði.
Erla Rúna Kristjánsdóttir hlaut 32 atkv. og Guðrún Tryggvadóttir 26 atkvæði.
Fundarstjóri hafði áður en kosning hófst gert tillögu um að þeir tveir sem ekki næðu kosningu sem aðalmenn yrðu í hópi varamanna.
Kosning varamanna.
Tveir af 9 varamönnum sem kosnir voru til 4. ára 26. mars 2007 hverfa úr hópnum. : Guðmundur Jósepsson gefur ekki kost á sér aftur og Sigríður Bergsteinsdóttir er nú orðin aðalmaður. Sjálfkjörið er því á varamannabekk skv. framansögðu. Varamenn eru því þessir:
Erla Rúna Kristjánsdóttir Þóra Grétarsdóttir
Guðrún Tryggvadóttir Gunnþór Gíslason
Guðný Ingvarsdóttir Páll Ingimarsson
Sigurður Sigurjónsson Sigurður Jónsson
Hjörtur Þórarinsson
Eftir er að draga um röð varamanna eins og áður hefur verið gert eftir slíkar kosningar.
6. Kjörnir voru skoðunarmenn reikninga þau Kristín Pétursdóttir og Guðmundur Theódórsson.
7. Kosning í aðrar nefndir og ráð voru ekki á dagskrá.
8.
Önnur mál.
Jóhanna Guðjónsdóttir lagði fram eftirfarandi vantrauststillögu:
„Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar 13. mars 2011 lýsir yfir vantrausti á sóknarnefnd og krefst þess að öll sóknarnefndin víki sæti.“
Óskað er eftir leynilegri atkvæðagreiðslu.
Jóhanna Guðjónsdóttir 120868 – 5519
Gengið var til atkvæða í leynilegri atkvæðagreiðslu. Þórir Haraldsson og Grímur Hergeirsson stjórnuðu kosningu. Atkvæði féllu þannig.: Nei sögðu 59 já 20, tveir seðlar voru auðir. Vantrauststillagan var því felld.
Þórir Haraldsson þakkaði starfsfólki kirkjunnar fyrir góð störf. Hann gagnrýndi að dætrum hans var meinað af kirkjuverði að sækja um sumarvinnu sem þær hafa sinnt.
Hann harmaði þær deilur sem uppi hafa verið í kirkjunni og óskaði eftir samstöðu.
Sr. Úlfar Guðmundsson tók undir orð Þóris um samstöðu og hvatti til fyrirgefningar. „Við búum við úrskurð biskups frá því í maí s.l. þar sem starfssvið sóknarprests er þrengt í Selfosskirkju og við verðum að búa við það.“
Björn Gíslason þakkaði traust við endurkosningu í sóknarnefnd og lýsti ánægju með frábært kirkjustarf í Selfosskirkju. Hann hvatti til samstöðu og sátta.
Sr. Óskar H. Óskarsson óskaði fólki til hamingju með kosningu í sóknarnefnd og þakkaði gott samstarf við alla í kirkjustarfinu.
Ingimar Pálsson óskaði nýkjörnu fólki til hamingju með kosningu í sóknarnefnd og sagði að sóknarnefnd ætti að koma fram á kærleiksríkan hátt. Þá taldi hann að orð sín kæmust ekki til skila í fundargerðum.
Sr. Óskar H. Óskarsson var síðastur ræðumanna og lagði áherslu á að allir þyrftu að vera samstíga um starfið.
Fundarstjóri sleit síðan fundi um kl. 1520.
Fundarritari: Sigurjón Erlingsson.
9. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis þann 22. mars.
Hófst kl. 18:02
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund.
1. Eysteinn kynnti bréf frá kirkjuráði dags. 17. janúar 2011 um kosningar til sóknarnefnda ofl. árið 2011.
Verkaskipting sóknarnefndar ákveðin: Tillaga um formann : Eystein Ó. Jónasson samþykkt samhljóða
Tillaga um gjaldkera: Guðmund Búason samþykkt samhljóða
Tillaga um ritara : Sigurjón Erlingsson samþykkt samhljóða
varaformaður : Björn Ingi Gíslason samþykkt samhljóða
varagjaldkeri : Sigríður Bergsteinsdóttir samþykkt samhljóða
vararitara : Bára Gísladóttir samþykkt samhljóða.
Þvínæst var dregið um röð varamanna.
1. Erla Rúna Kristjánsdóttir........ .. Engjavegi 26
2. Páll Ingimarsson....................... Lágengi 3
3. Þóra Grétarsdóttir................... Fossvegi 2
4. Hjörtur Þórarinsson................. Lóurima 15
5. Guðrún Tryggvadóttir.............. Grenigrund 42
6. Guðný Ingvarsdóttir.............. .. Sílatjörn 16
7. Gunnþór Gíslason.................... Erlurima 4
8. Sigurður Jónsson..................... Laxabakka 3
9. Sigurður Sigurjónsson.............. Skólavöllum 9
Þá kom tillaga um Sigríði Bergsteinsdóttur sem safnaðarfulltrúa. Samþykkt samhljóða.
Grím Hergeirsson sem varamann hennar. Samþykkt samhljóða.
2. Formaður kynnti fundarboð á héraðsfund Suðurprófastsdæmis sem verður á Hótel Klaustri Kirkjubæjarklaustri 26. mars nk. Kom fram að auk formanns myndu Sigríður Bergsteinsdóttir og María Kjartansdóttir mæta úr sóknarnefnd. Sr. Óskar H. Óskarsson ætlaði einnig að mæta á fundinn.
3. Rætt var um útgáfu Fréttabréfs Selfosskirkju. Voru menn sammála um að hún mætti ekki falla niður. Leitað yrði leiða til að lækka kostnaðinn.
4. Sr. Óskar H. Óskarsson ræddi um færslur kirkjubóka og óskaði eftir aðgengi að þeim þótt sóknarprestur sé ekki í húsinu, en þær eru nú geymdar í læstum skáp í læstri skrifstofu sóknarprests. Fram kom sú hugmynd að kirkjubækurnar verði geymdar í læstum skáp í skjalageymslunni sem er framan við skrifstofur presta. Lýstu prestarnir og sóknarnefnd samþykki sínu við þá tilhögun.
Þá lagði sr. Óskar fram eftirfarandi bókun. :
„Þar sem sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson vék af fundi áður en kom að liðnum önnur mál á aðalsafnaðafundi Selfosssóknar 13. mars sl. gafst mér ekki færi á að veita andsvör við orðum hans um mig vegna flutnings á síma Selfosskirkju sl. vor og vil ég því koma eftirfarandi á framfæri.
„Athugasemd frá sr. Óskari Hafsteini Óskarssyni vegna orða sóknarprests um hið svokallaða „símamál“ á aðalsafnaðarfundi 13. mars 2011:
Kjarni máls er að sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson sóknarprestur aftengdi síma prestsins í Selfosskirkju og tengdi sínu eigin farsímanúmeri án samráðs við sóknarnefnd og prest sem þó töldust (og teljast) umráðandi og handhafi númersins. Ef neyðarlína, eða hver sem er annar, vildi ná tali af sóknarpresti þá var hægt að nálgast númer hans í símaskránni með því að fletta upp á „Selfosskirkja“ eða undir hans eigin nafni. Að auki var bent á farsímanúmer hans í talhólfi mínu og svo eru prestar í Árnessýslu þess utan með neyðarsíma sem hægt er að ná í allan sólarhringinn og neyðarlínan, sjúkrahús og lögregla hafa aðgang að. Fráleitt er að halda því fram að símanúmer prestsins í Selfosskirkju hafi eitthvað að gera með aðgengi neyðarlínunnar eða annarra að sóknarpresti og síma hans, eins og látið var í veðri vaka í ræðu sóknarprests á aðalsafnaðarfundi 13. mars sl.“ (Undirritað af ÓHÓ).
Umræður voru um þetta mál og var niðurstaða sú að athuga símamálin og skipulag þeirra nánar.
5. Rætt var um að heiðra Eygló Gunnarsdóttur við starfslok hennar nú í vor. Stefnt verði að 22. maí.
Fundi slitið kl. 19:30, en þessir sátu fundinn: Eysteinn Ó. Jónasson, Kristinn Ágúst Friðfinnsson, María Kjartansdóttir, Óskar Hafsteinn Óskarsson, Bára Kr. Gísladóttir, Guðmundur Búason, Grímur Hergeirsson, Sigríður Bergsteinsdóttir, Hjörtur Þórarinsson auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar.
Sóknarnefndarfundur 19. apríl 2011
(haldinn á baðstofulofti).
1. Umræða um hve hljóðbært er á skrifstofu prestanna. Þórður kom með hugmyndir. Þórður og Guðmundur boða verkfræðinga Verkfræðistofu á fund og athuga hvað hægt er að gera.
2. Jörg ræðir um septembertónleika 2011. Fór yfir kostnað við tónleika 2010 og áætlaðan kostnað núna í september 2011. Umræða um hvort eigi að halda þessum tónleikum áfram. Ákveðið að halda tónleikum áfram. Kostnaður við tónleikana 2010 var um 300.000,- kr. Jörg dró kostnaðaráætlun niður í 126.000,- kr. í ár.
3. Eygló ræðir um hver muni taka við „sjóðnum góða“ af henni þegar hún lætur af störfum, hjálparstarf kirkjunnar, umsóknir í það á árinu voru 124. Umræða um fyrirkomulag og skipulag á því. Ákveðið að prestar ræði við okkar mann í stjórninni, sr. Svein Valgeirsson. Umræða um að færa „Sjóðinn góða“ yfir á Rauðakrossinn.
4. Ninna Sif segir frá Æskulýðslandsmóti 28. – 30. október 2011. Búast má við 700 – 800 unglingum.
5. Gunnþór biður um sláttuvél fyrir kirkjugarðinn. Einnig hljóðnema (þráðlausa) fyrir prestana. Um 175.000,- kr. fyrir 2 hljóðnema og sendi. Umræður urðu um hvort sé hagstæðara að festa kaup á sláttuvél og mann á vélina eða bjóða út starfið. Ákveðið að kanna með útboð á slætti fyrir árið 2012. Kaup á sláttuvél samþykkt.
6. Óskað er eftir að Nanna Sif verði vígð sem prestur. Samþykkt.
7. Páska kaffi eftir messu á páskadagsmorgun. Bára verslar, mæting á laugard. 1600 og 700 á páskadag.
8. Jörg ræðir um að fá nýtt píanó á æfingarloftið. Eysteinn athugar málið við Hjört Þórarinsson (varðandi styrk vegna aðventutónleika).
9. Björn ræðir um að starfsmenn kirkjunnar hafi sig mikið í frammi á aðalsafnaðarfundi 2011. Umræða um að starfsfólk standi ekki í framíköllum og orðaskaki við fólk sem er í ræðustól á aðalfundum.
10. Almennar umræður um málefni kirkjunnar.
Fundarritari Bára Kr. Gísladóttir
Fundinn sátu: Björn Ingi Gíslason, Eygló J. Gunnarsdóttir, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Grímur Hergeirsson, Gunnþór Gíslason, Þórður Stefánsson, sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson, María Kjartansdóttir, Guðmundur Búason, Eysteinn Ó. Jónasson, sr. Óskar H. Óskarsson og ritarinn Bára Kristbjörg Gísladóttir.
11. fundur sóknarnefndar í rislofti safnaðarheimilis 17. maí 2011. Hófst kl. 17:00
Varaformaður Björn Gíslason setti fund í fjarveru formanns.
1. Bára Gísladóttir ritari síðustu fundargerðar las hana upp og var hún síðan undirrituð.
2. Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson sagði frá ýmsum þáttum í kirkjustarfinu að undanförnu.
Eygló Gunnarsdóttir sagði frá því að hún hefir nú fært „sjóðinn góða“ til Rauðakrossins. Fram kom að prestarnir sr. Kristinn og sr. Óskar hafa ákveðið að hafa fasta viðtalstíma til skiptis á ákveðnum tímum til að taka við umsóknum.
Þá sagði hún frá því að þau Elísabet og Björn Júlíusson hafa fært „Geisla“ tvo kertastjaka að gjöf.
Gunnþór kirkjuvörður sagði frá ýmsu sem varðar viðhald kirkjunnar.
3. Rætt bréf frá kirkjukór v/ferðastyrks til organista.
„Sóknarnefnd telur þetta málefni kórsins.“ Samþykkt samhljóða.
4. Rætt um samkomu 22. maí nk. – kveðjusamsæti til heiðurs Eygló Gunnarsdóttur djákna sem nú hefir látið af störfum.
5. Fram kom að Sigríður Bergsteinsdóttir hefir óskað eftir lausn frá störfum í sóknarnefnd. Færist þá 1. varamaður, Erla Rúna Kristjánsdóttir upp.
Önnur mál:
1. Guðmundur Búason sagði frá því að kominn er upp læstur skápur í skjalageymslunni fyrir kirkjubækurnar. Þá ræddi hann um athuganir á hljóðburði milli skrifstofa. Guðmundi falið að halda málinu áfram og verði þetta lagað.
Þá sagði Guðmundur frá fjármálum kirkjunnar, en lækkun er um 7 ½ milljón frá árinu 2009 og eru lækkanir yfir 20%. Þá falla greiðslur frá prófastdæminu niður frá 1. júlí nk. þ.e. hluti af launum æskulýðsfulltrúa.
2. Umræður voru um frétt í síðustu Dagskrá um prestsvígslu Ninnu Sifjar sem er í 50% starfi sem æskulýðsfulltrúi hjá Selfosskirkju. Fram kom að framsetning fréttarinnar er með þeim hætti að valdið hefir misskilningi. Eysteinn formaður mun skýra þetta mál í næstu Dagskrá, en starf Ninnu Sifjar er óbreytt áfram sem æskulýðsfulltrúa.
3. Sr. Óskar H. Óskarsson lagði fram tillögu að skipulagsskrá fyrir „Tónlistar- og menningarsjóð Selfosskirkju“. Samþykkt samhljóða. (Skipulagsskráin hér neðst).
4. Samþykkt að greiða kr. 70.000,- til tónlistarfólks við kvöldmessur í vetur.
Fundi slitið kl. 19:10
Eftirtaldir rituðu undir fundargerð auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar: Óskar Hafsteinn Óskarsson, María Kjartansdóttir, Bára Kristbjörg Gísladóttir, Grímur Hergeirsson, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Björn Ingi Gíslason, Þórður Stefánsson og Guðmundur Búason. (Sjá framhald)
Skipulagsskrá Tónlistar og menningarsjóðs Selfosskirkju sem samþykkt var á fundinum var eftirfarandi.
Tónlistar- og menningarsjóður Selfosskirkju
Sjóðnum er ætlað að styðja við tónlistar- og menningarstarf í Selfosskirkju. Er þá m.a. átt við þátttöku tónlistarfólks í kvöldmessum, á tónleikum og í öðrum viðburðum á vettvangi kirkjunnar. Þá er sjóðnum einnig ætlað að stuðla að og styðja menningarstarfsemi innan veggja kirkjunnar, t.d. með því að efna til sýninga í samstarfi við þar til bæra aðila á sviði bókmennta, myndlistar og ljósmyndunar.
Sóknarnefnd Selfosskirkju skipar þriggja manna sjóðsstjórn til að halda utan um Tónlistar og menningarsjóðinn, marka honum stefnu og ákvarðanir um styrki og úthlutanir úr sjóðnum. Sjóðstjórn skal valin til 1. árs í senn. Gjaldkeri sóknarnefndar úthlutar úr sjóðnum í samræmi við ákvarðanir sjóðsstjórnar.
Sóknarnefnd Selfosskirkju leggur Tónlistar- og menningarsjóðnum stofnfjárframlag. Þá skal stefnt að því að afla sjóðnum tekna með fjarframlögum frá fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum.
Samþykkt aðalsafnaðarfundar Selfosssóknar þarf til að leggja sjóðinn niður og skulu þá fjármunir sjóðsins nýttir til safnaðarstarfs í Selfosskirkju.
12. fundur sóknarnefndar á árinu haldinn í rislofti safnaðarheimilis
16. ágúst 2011. Hófst kl. 17oo.
Formaður Eysteinn Ó. Jónasson setti fund og kynnti dagskrá.
Fundi slitið kl. 1920 og sátu eftirtaldir fundinn.: Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Guðmundur Búason, Björn Gíslason, Bára Kr. Gísladóttir, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Þórður Stefánsson, Grímur Hergeirsson og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
13. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis 20. sept. 2011 . Hófst kl. 17:00
Formaður Eysteinn setti fund.
1. Rætt var um hljóðeinangrun við skrifstofur prestanna. Til að bæta úr því hefir nú verið sett hljóðeingrandi efni á millivegg milli skrifstofa. Ætlunin er að setja síðan þröskulda undir hurðir.
2. Eysteinn ræddi um þær fregnir að sóknarprestur hefði vísað málum sínum til umboðsmanns alþingis þ.e. ákvörðun biskups frá 11. maí 2010. Sr. Kristinn upplýsti að eftir að umboðsmaður alþingis hefir vísað málinu frá sér hefir sr. Kristinn leitað til úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar sem þegar hefir vísað málinu frá sér. Sr. Kristinn upplýsti að hann hefir nú vísað málinu til áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar. Þá upplýsti hann að hann hefði snúið sér til nýkjörins vígslubiskups í Skálholti.
Eftir umræður milli sóknarprests og sóknarnefndar varð sr. Kristinn að yfirgefa fundinn.
3. Björn Gíslason ræddi um útgáfu fréttabréfs kirkjunnar og gerði grein fyrir kostnaði við útgáfuna. Rætt var um að stefna að útgáfu fréttabréfsins í nóvember. Ritnefndinni falið að vinna að málinu.
4. Sr. Óskar sagði frá starfinu í kirkjunni. Nú liggur fyrir starfsáætlun fyrir allt næsta ár.
5. Hjörtur Þórarinsson upplýsti að ákveðnir væru tvennir kórtónleikar í kirkjunni þann 3. des. n.k. – aðventutónleikar.
Fundi slitið kl. 19:00
Eftirtaldir undirrituðu fundargerðina: Óskar Hafsteinn Óskarsson, Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Hjörtur Þórarinsson, Björn Ingi Gíslason, Bára Kr. Gísladóttir, Þórður Stefánsson, Grímur Hergeirsson, Páll B. Ingimarsson og fundarritari Sigurjón Erlingsson.
14. fundur sóknarnefndar 2011 í eldhúsi safnaðarheimilis 6. október. Hófst kl. 1800 .
1. Formaður Eysteinn setti fund. Fundarefni er að ræða stöðu mála varðandi kærumál sóknarprests sem rædd voru á síðasta fundi.
Eftir umræður var eftirfarandi ályktun samþ. samhljóða.
„Með því að vísa málum sínum varðandi stöðu sína við Selfosskirkju til umboðsmanns alþingis, úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar og áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar er sóknarprestur að reyna að fá hnekkt ákvörðun biskups frá 11. maí 2010 um skiptingu starfa í Selfosskirkju sem skýrt er mörkuð í ákvörðun biskups. Með þessari tilraun sóknarprests, sem gerð er án vitundar sóknarnefndar, sem er beinn aðili að starfsmannafundum í kirkjunni, er sóknarpresturinn að leggjast gegn þeim aðilum sem hann á að vinna með, þ.e. biskupi, prestinum samstarfsmanni sínum í Selfosskirkju, sóknarnefndinni og þeim fjölda sóknarfólks á Selfossi sem mótmælti til biskups með undirskriftum þeirri ákvörðun kirkjuþings að skipa söfnuðinum sóknarprest án þess að söfnuðurinn hefði neitt um það að segja.
Í ákvörðun biskups 11. maí 2010 eru m.a. þessi meginatriði:
1. Sóknarprestur hefir ekki „stjórnunarvald eða boðvald yfir presti“.
2. Prestur hefir „umsjón með daglegu kirkjustarfi í Selfosskirkju“.
3. „Prestur undirbúi starfsmannafundi í samráði við sóknarprest og sóknarnefnd“.
Sóknarnefnd telur að biskup hafi skýra og vafalausa heimild til ákvörðunar sinnar og vísar sóknarnefnd í „Starfsreglur um presta“ nr. 735 1998 þar sem segir svo í 43. grein um skiptingu starfa þar sem prestar eru fleiri en einn í prestakalli – að taka skuli mið af eftirfarandi: „Hvernig starf er auglýst og kynnt ef því er að skipta“ – og einnig: „Sérstökum atvikum eða aðstæðum í prestakalli ef því er að skipta sem gera nauðsynlegt að grípa til sérstakra að óvenjulegra ráðstafana.“
Þar sem öllum er ljóst að aðstæður voru mjög óvenjulegar varðandi Selfosssókn telur sóknarnefnd að ákvörðunin standi fullkomlega skv. framansögðu.
2. Samþykkt að taka þátt í kostnaði vegna áætlaðra ferða Unglingakórs Selfosskirkju fram að áramótum, skv. bréfi frá Edit Molnár.
Fundi slitið kl. 1900 . Eftirtaldir sátu fundinn : Grímur Hergeirsson, Guðmundur Búason, Erla Rúna Kristjánsdóttir, María Kjartansdóttir, Þórður Stefánsson, Eysteinn Ó. Jónasson, Bára Kr. Gísladóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.