15. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis
18. okt.,  hófst kl. 1700.

Eysteinn formaður setti fund.

1.    Hann sagði frá fundi sem hann ásamt Birni Gíslasyni áttu á þingborg en fundurinn var til undirbúnings kirkjuþings. Björn sagði frá atriðum sem fram komu á fundinum og þá sérstaklega afgreiðslu kirkjuþings á sameiningu Hraungerðis og Selfossprestakalls. Umræður voru á sóknarnefnd um samskipti ríkis og kirkju fjármál ofl.

2.    Gunnþór kirkjuvörður lagði fram hugmynd frá Sláttu- og garðaþjónustu Suðurlands í slátt og beðahreinsun á lóð kirkju og kirkjugarðs fyrir sumarið 2012. „Samþykkt að biðja Guðmund og Gunnþór að skoða málið nánar“. Þá sagði Gunnþór frá því að hann vildi flytja orkukaup til Orkusölunnar hf. frá Hitaveitu Suðurnesja, þar sem hann taldi breytinguna tvímælalaust hagstæða. Samþykkt samhljóða.

4.    Samþ. að fela Gunnþóri og Sigurjóni að gera tillögur um útimálningu á kirkjunni.

5.    Rætt var um að gera þyrfti bækling um frágang leiða í kirkjugarði. (Tillögur til um nýjasta hlutann EÓJ.). Gunnþóri og sr. Óskari falið að gera tillögur.

6.    Rætt var um greiðslur til kirkjukórs. „Samþykkt að ræða við stjórn kórsins“.

7.    Sr. Óskar sagðir frá ýmsu í starfi kirkjunnar.

Fundi slitið kl. 1850 og sátu eftirtaldir fundinn.: Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Guðmundur Búason, Bára Kr. Gísladóttir, Björn Ingi Gíslason, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Gunnþór Gíslason, Hjörtur Þórarinsson, Grímur Hergeirsson og fundarritari Sigurjón Erlingsson. 
 

16. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis
15. nóvember.  Hófst kl. 17:00

1.    Eysteinn Ó. Jónasson formaður setti fund og minntist á vel heppnaða samverustund sl. föstudagskvöld í Gesthúsum, en sóknarnefnd og starfsfólk kirkjunnar kom þá saman til kvöldverðar og kvöldvöku. Þakkaði Eysteinn þeim sem að því unnu.

2.    Rætt var um skerðingar á sóknargjöldum. Formanni og guðmundi Búasyni falið að semja bréf um að nótmæla skerðingum, en sóknarnefnd síðan undirrita bréfið. Samþykkt var að fela formanni að leita eftir því við 1. þingmann kjördæmisins að sóknarnefnd fái fund með þingmönnum kjördæmisins.

3.    Samþykkt að kirkjugarðurinn leggi 2 millj. kr. til utanhússframkvæmda framan við kirkju –  hitalögn í stétt o.fl.

4.    Rætt um fyrirhugaða málun á þökum kirkju og safnaðarheimilis. Áætlaðar kostnaðartölur frá Verkfræðistofu Suðurlands liggja fyrir. Verkið verður boðið út á næsta vori ef fjárhagur leyfir.

5.    Erla Rúna Kristjánsdóttir lagði fram bréf frá stjórn Kvenfélags Selfosskirkju þar sem fram kemur að þörf sé á að kaupa nýja uppþvottavél. Erlu Rúnu og Gunnþóri falið að athuga málið nánar.

6.    Gunnþór upplýsti (sbr. 3. lið síðustu fundargerðar) að hann hefði náð samningum við Orkuveitu Suðurnesja um lækkun á rafmagni frá því sem var. „Samþykkt að halda viðskiptum áfram við Orkuveitu Suðurnesja“.

7.    Samþykkt að stefna að fundi með prestum kirkjunnar fljótlega eftir helgina.

Fundi slitið kl. 19:30 og sátu eftirfarandi fundinn: Óskar H. Óskarsson, Eysteinn Ó. Jónasson,  María Kjartansdóttir, Guðmundur Búason, Bára Kr. Gísladóttir, Björn Ingi Gíslason, Gunnþór Gíslason kirkjuvörður, Erla Rúna Kristjánsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.


17. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn í rislofti safnaðarheimilis
24. nóvember. Hófst kl. 1800

1.    Formaður Eysteinn setti fund og kynnti bréf sem hann hefir sent 1. þingmanni Suðurkjördæmis Björgvin G. Sigurðssyni þar sem sóknarnefnd óskar eftir fundi með þingmönnum kjördæmisins vegna niðurskurðar hjá kirkjunni sbr. lið 2 í síðustu fundargerð.   Svarbréf hefur komið frá Björgvin þar sem hann ætlar að finna tíma til fundar.

2.    Þá lagði Eysteinn fram bréf frá Kirkjugarðasambandi Íslands þar sem kynnt er breyting á greiðsluformi fyrir prestsþjónustu við útfarir.

3.    Lagt var fram til umræðu „vinnureglur“ sem ber nafnið „Selfosskirkja – vakandi gegn kynferðislegu ofbeldi“. Vinnureglur þessar voru sendar sóknarnefnd og prestum til skoðunar í sl. viku. „Eftir umræður voru vinnureglur þessar samþykktar samhljóða“, og verða settar í fundargerðabók á eftir þessari fundargerð.
Samþykkt var að vinnureglur þessar verði sendar eftirtöldum: Biskupi Íslands, vígslubiskupi í Skálholti og prófasti Suðurprófastsdæmis.

Fundi slitið kl. 19:02
 og sátu eftirfarandi fundinn: Óskar H. Óskarsson, Bára Kr. Gísladóttir, María Kjartansdóttir, Guðmundur Búason, Eysteinn Ó. Jónasson, Ninna Sif Svavarsdóttir, Þórður Stefánsson, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Grímur Hergeirsson  og fundarritari Sigurjón Erlingsson.

Hér er afrit af vinnureglum þeim sem fylgja fundargerðinni í fundargerðarbók. :

Selfosskirkja – vakandi gegn kynferðisbrotum

Starfsfólk og sóknarnefnd Selfosskirkju standa saman gegn kynferðisbrotum. Við viljum tryggja að kirkjan sé öruggur staður og skjól fyrir þau sem þangað koma. Við leggjum áherslu á að kynferðisbrot séu til umræðu innan kirkjunnar og að um þau sé rætt sem veruleika og alvarlegt mein í okkar samfélagi sem þurfi að vinna gegn með öllum tiltækum ráðum. Við viljum að afstaða starfsfólks og sóknarnefndar kirkjunnar til kynferðisbrota komi skýrt fram við foreldra barna sem sækja barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar. Einnig viljum við að kynferðisbrot séu rædd í tengslum við fræðslu í barna- og æskulýðsstarfi kirkjunnar. Við viljum sækja okkur fræðslu um kynferðisbrot og viðbrögð gegn þeim með reglubundnum hætti.    Til að framfylgja þessu hafa sóknarnefnd og prestar kirkjunnar sett sér og öðru starfsfólki kirkjunnar vinnureglur. Þannig viljum við halda vöku okkar í Selfosskirkju og taka skýra afstöðu gegn kynferðisbrotum.

Vinnureglur fyrir Selfosskirkju:

  1. Starfsfólk og sóknarnefnd Selfosskirkju standa saman gegn kynferðisbrotum.
  2. Sóknarnefnd Selfosskirkju, í samráði við presta kirkjunnar, athugar áður en fólk er ráðið til starfa við kirkjuna, jafnt í launuð sem og ólaunuð störf, hvort viðkomandi hafi gerst sekur um kynferðisbrot. Snýr það jafnt að brotum er varða landslög og brotum á þeim starfs- og siðareglum sem í gildi eru hjá þjóðkirkjunni og varða kynferðisbrot. Þau sem orðið hafa uppvís að brotum á fyrrnefndum reglum og/eða lögum skulu ekki ráðin til starfa hjá Selfosskirkju og að jafnaði heldur ekki annast athafnir innan veggja hennar, og aldrei nema að fengnu samþykki sóknarnefndar og presta kirkjunnar.
  3. Prestar kynna fyrir fólki sem ráðið er til starfa við kirkjuna þær starfs- og siðareglur sem í gildi eru hjá kirkjunni (sjá lið 6). Sérstaklega skulu kynntar fyrir nýju starfsfólki afstaða og áherslur Selfosskirkju varðandi kynferðisbrot.
  4. Á hverju haustmisseri skal á vettvangi kirkjunnar fara fram fræðsla/umræður fyrir starfsfólk og sóknarnefnd um kynferðisbrot.
  5. Prestar ræða kynferðisbrot og afstöðu Selfosskirkju sérstaklega til þeirra á eftirtöldum stöðum:

a)       Á fundum með foreldrum fermingarbarna við upphaf fermingarstarfa.

b)      Á fundum með æskulýðsleiðtogum og öðrum þeim sem aðstoða við barna- og æskulýðsstarf við uppaf vetrarstarfs kirkjunnar að hausti.

c)       Á starfsmannafundi í Selfosskirkju við upphaf vetrarstarfs.

d)      Í fermingarfræðslu og á samverum í barna- og æskulýðsstarfi á haustmisseri.

  1. Að öðru leyti vísast í starfsreglur um presta og sóknarnefndir, siðareglur vígðra þjóna og annars starfsfólks þjóðkirkjunnar og siðareglur fyrir starfsfólk í barna- og unglingastarfi kirkjunnar.
  2. Vinnureglur þessar skulu endurskoðaðar eftir þörfum af sóknarnefnd og prestum kirkjunnar.

18. fundur sóknarnefndar 2011 haldinn 15. desember í rislofti safnaðarheimilis.
Hófst kl. 18:05

Eysteinn formaður setti fund.

1.    Gunnþór kirkjuvörður lagði fram uppdrætti frá „Landform“ um kistugrafreiti, þá lagði hann fram „Nokkur atriði um umgengni og frágang leiða í Selfosskirkjugarði -  til aðstandenda“. Þær tillögur eru frá sr. Óskari og Gunnþóri, en þeim var falið í ágúst sl. að gera tillögur um þetta efni sem aðstandendum verði kynntar. Tillögurnar samþ. samhljóða.    Þá lagði Gunnþór fram viðhaldsóskir 2012 í 9 liðum.

2.    Rætt var um ágóða af aðventutónleikum sem hjálparsjóði kirkjunnar var afhentur.  Samþykkt að upphæðin fari í „Sjóðinn góða“.

3.    Rætt var um tölvupóst biskups Íslands frá 2. des. s.l.   Vegna hans samþykkir sóknarnefnd eftirfarandi: „Biskup Íslands sendi formanni sóknarnefndar í tölvupósti nokkrar línur þar sem hann lýsir ánægju með að sóknarnefnd og prestar marki sér stefnu í kynferðisbrotamálum. Sóknarnefnd þakkar biskupi góð orð og ábendingar.“

4.    „Samþykkt að fela Erlu Rúnu og Gunnþóri að fá smið til að hækka upp uppþvottavélina í eldhúsinu“.

Fundi slitið kl. 19:35 og eftirtaldir undirrituðu fundargerðina.: Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, Björn Ingi Gíslason, Hjörtur Þórarinsson, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Þórður Stefánsson, Grímur Hergeirsson auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar.

 

1. fundur sóknarnefndar 2012 haldinn á rislofti safnaðarheimilis

17. janúar kl. 1700 .

Eysteinn formaður setti fund.

1.    Formaður greindi frá geymsluhólfi í Landsbankanum. Ekki lengur talin þörf á að vera með slíkt geymsluhólf. Samþykkt að segja því upp.

2.    Rætt um áætlun vegna viðhalds mannvirkja 2012. Fyrir liggur að m.a. þyrfti að ráðast í viðhald á þaki en kostnaðaráætlun liggur fyrir (eins og fram kemur í 4. lið 14. nóv. 2011 EÓJ). Áfram verður unnið að viðhaldsáætlun samhliða vinnu að fjárhagsáætlun 2012.

3.    Gjaldkeri kynnti fyrstu drög ársreikninga 2011 sem og drög fjárhagsáætlana 2012.

4.    Inn á fundinn komu fulltrúar ÆSKÞ, þau Sigríður Tryggvadóttir og Sigurvin Jónsson. Færðu þau Selfosskirkju bestu þakkir sínar fyrir frábærar móttökur á landsmóti  ÆSKÞ sem haldið var á Selfossi í október sl. Tóku þau jafnframt fram að eftirtektarvert væri hve góð þátttaka er jafnan frá Selfosskirkju í viðburðum á vettvangi ÆSKÞ. Gestirnir viku af fundi að því búnu og voru þeim þakkaðar hlýjar kveðjur.

Hér yfirgefur Grímur Hergeirsson fundinn en hann ritaði fundargerð fram að því. Sigurjón tekur við fundarritun en hann gat ekki mætt á fundinn fyrr en kl. 1730 .

5.    Teknar voru upp umræður um drögin að ársreikningi sem gjaldkeri lagði fram undir lið 3 . Rætt var um ýms þætti í fjárhagsáætlun fyrir árið 2012, starfmannahald, viðhaldsþætti  ofl. .

6.    Eysteinn ræddi um fyrirkomulag á kosningu til sóknarnefndar á næsta aðalsafnaðarfundi.

7.    Sr. Kristinn óskaði eftir að bókuð yrði athugasemd hans varðandi fundargerð 15. des. sl. en hann þurfti að yfirgefa fundinn. „Sr. Kristinn Ágúst þurfti að yfirgefa fundinn strax í upphafi fundar vegna neyðarútkalls“.

8.    Guðmundur gjaldkeri lagði fram beiðni frá Edit Molnár um styrki vegna kórastarfs, ferðalög ofl. Samþykkt að styðja kórastarfið um 300 – 350 þús. kr.

9.    Rætt var um áframhaldandi stuðning við ferðakostnað fermingarbarna í Skálholt og útgáfu fréttabréfs.

Fundi slitið kl. 1915

Eftirtaldir sátu fundinn: Óskar Hafsteinn Óskarsson, Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Kristinn Á. Friðfinnsson, Ninna Sif Svavarsdóttir, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Þórður Stefánsson og fundarritarar  Grímur Hergeirsson og Sigurjón Erlingsson.

 

2. fundur sóknarnefndar 2012 haldinn í rislofti safnaðarheimilis
21. febr. 2012 . Hófst kl. 1700

1.    Eysteinn formaður setti fund. Hann ræddi um tilhögun á kosningu í sóknarnefnd og kosningu varamanna á næsta aðalsafnaðarfundi. Þá ræddi hann einnig um kosningu safnaðarfulltrúa og varamanns hans. Eysteinn kynnti einnig bréf sem hann hafði ritað prófasti og svarbréf prófasts um þessi mál.

2.    Gunnþór kirkjuvörður kynnti útboð sem hann hefir gert um hirðingu beða, slátt og aðra nauðsynlega hirðingu kirkjulóðar og kirkjugarðs. Eftirfarandi bilboð bárust:
Frá Evu Björk Kristjánsdóttur skrúðgarðafræðingi og Ásgeiri G. Hilmarssyni garðyrkjumanni kr. 2.244.944,- m.vsk.
Frá sláttu og garðaþjónustu Suðurlands – Ingunni Magnúsdóttir – tvö tilboð – annað kr. 1.643.600,- m.vsk., hitt 1.789.200 m. vsk. 
„Samþykkt samhljóða“ að taka tilboðinu kr. 1.643.600,- .

       Gunnþór kynnti bréf frá Kolbrúnu Karlsdóttur sem biður um að fá frí afnot af kirkjunni 4. júlí nk. fyrir tónleikahald. Þetta gerir hún í nafni líknarfélagsins Bergmáls. Samþykkt samhljóða
Þá óskaði Gunnþór eftir að láta fella 3 grenitré í kirkjugarði. „Samþykkt að fela Eysteini, Gunnþóri og prestum að athuga málið“. 
Þá taldi Gunnþór þörf á að setja slitlag á stíga í nýjasta hluta kirkjugarðsins. „Samþykkt að athuga málið nánar“.   Síðan vék Gunnþór af fundi.

3.    Rætt var um væntanlega útgáfu á fréttablaði Selfosskirkju, en það er í undirbúningi í sama formi og áður.
Hér þurfti Ninna Sif Svavarsdóttir að víkja af fundi.

4.    Guðmundur Gjaldkeri lagði fram tillögu að reikningum kirkju, kirkjugarðs og hjálparsjóðs. Reikningarnir eru áritaðir af skoðunarmönnum. 
Með reikningunum er fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Rætt var um reikningana og hvort möguleikar væru á sparnaði í rekstri á einhverjum liðum framar en gert var á sl. ári.

5.    Samþ. að greiða ráðstefnugjald v. ferðar Eyglóar Gunnarsdóttur á ráðstefnu djákna í Noregi.

Fundi slitið kl. 1910

Undir fundargerð rituðu Óskar Hafsteinn Óskarsson, Kristinn Ág. Friðfinnsson, Grímur Hergeirsson, Þórður Stefánsson, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Bára Kr. Gísladóttir, Guðmundur Búason, María Kjartansdóttir, Eysteinn Ó. Jónasson, Björn Ingi Gíslason og fundarritari Sigurjón Erlingsson.


   3. fundur sóknarnefndar 2012 sem er: Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar fyrir árið 2011, haldinn í sal safnaðarheimilis Selfosskirkju sunnudaginn 4. mars 2012 að lokinni messu. Fundur hófst kl. 1230 .

Formaður sóknarnefndar Eysteinn Ó. Jónasson setti fund og gerði tillögu um Grím Hergeirsson sem fundarstjóra og Sigurjón Erlingsson sem fundarritara. Ekki komu aðrar tillögur og voru þeir sjálfkjörnir.

1. a) Skýrsla formanns sóknarnefndar sem Eysteinn flutti. Hann nefndi niðurskurð tekna sem er yfir 20% og rakti hvernig brugðist hefur verið við því með ýmsum aðgerðum til lækkunar rekstrarkostnaðar. Það hefur verið rætt í sóknarnefnd hvar hægt yrði að beita frekari niðurskurði án meiri skaða fyrir kirkjustarfið en orðið er. 
Þá sagði hann að æskulýðsstarf okkar kirkju skilaði mjög öflugu starfi á landsvísu. Hann sagði frá Æskulýðslandsmóti Þjóðkirkjunnar sem haldið var á Selfossi 28. – 30. október s.l. en á því voru rúmlega 500 unglingar af öllu landinu undir stjórn Ninnu Sifjar. Þá nefndi Eysteinn kvenfélag kirkjunnar sem hefur allt frá upphafi verið ákveðin kjölfesta í innra starfi kirkjunnar.
Þá minntist hann á fréttabréf Selfosskirkju „Kirkjufréttir“ sem komið hefur út s.l. 5 ár.
Skráðir fundir sóknarnefndar eru 18 á árinu auk fjölda funda, sérstakra nefnda sóknarinnar svo sem byggingarnefndar. 
Þá taldi Eysteinn upp gjafir sem færðar voru kirkjunni á árinu. Útfararstofnunin „Fylgd“ hefur allt liðið ár og fram til þessa dags gefið blómaskreytingar á altari við athafnir. Flutti hann þakkir fyrir það. „Landform“ á Selfossi hefir gefið kirkjunni eintak af öllum teikningum sem Landform hefur unnið fyrir kirkju og kirkjugarð á liðnum árum. 
Soroptimistafélagið hefir gefið skjávarpa sem nýst hefur við barnastarf og hina ýmsa fundi í kirkjunni.
Þá gat Eysteinn þess að Eygló Jóna Gunnarsdóttir djákni lét af störfum á sl. vori og þakkaði henni góð störf. Sigríður Bergsteinsdóttir þurfti af persónulegum ástæðum að hætta í sóknarnefnd. Í hennar stað færðist Erla Rúna Kristjánsdóttir úr 1. varamannssæti upp í aðalnefnd. Á síðari hluta ársins var Ninna Sif vígð til prests en hún er ráðin áfram sem æskulýðsfulltrúi í 75% starf. 
Keyptur var á árinu eldtraustur skjalaskápur fyrir kirkjubækur ofl. og hann settur upp í skjalageymslu. 
Á sl. ári var stofnaður „Tónlistar- og menningarsjóður Selfosskirkju“ og honum sett skipulagsskrá. Settar voru á árinu vinnureglur sem bera nafnið „Selfosskirkja – vakandi gegn kynferðislegu ofbeldi.“
(Þar sem sóknarpresti seinkaði vegna athafnar bað formaður sr. Óskar um skýrslu . (EÓJ)

b)     Sr. Óskar H. Óskarsson prestur flutti skýrslu um kirkjustarfið, sagði frá messum og tónlistarflutningi, en hann hefur bryddað upp á ýmsum nýjungum í messuhaldi, þ.á.m. messu upp á Ingólfsfjalli, messum í samstarfi við félagasamtök svo sem Ungmennafélagið, Lionsmenn ofl. Hann gat þess að fermingarbörn yrðu milli 90 og 100 í vor. Sr. Óskar þakkaði ölum fyrir gott samstarf.

c)      Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson (sem hér var kominn) flutti í skýrslu um messugjörðir og aðrar athafnir í Selfosskirkju á árinu 2011. Kirkjuguðsþjónustur á sunnudögum og öðrum helgidögum 65. Viðstaddir eru 8.629. Altarisganga 1.675. Aðrar almennar safnaðarguðsþjónustur- athafnir =169. Viðstaddir 2.706 . Barnaguðsþjónustur 39. Viðstaddir 1.820. Aðrar guðsþjónustur, bæna og helgistundir - athafnir 164 viðstaddir  9.170 .

Fjöldi fermdra 106. Fjöldi skírna 108. Viðkomur alls um 22 þúsund. Þá sagði sr. Kristinn Ágúst frá æskulýðs, kóra, og sálgæslustarfi og þakkaði fyrir gott samstarf.

c)      Ninna Sif Svavarsdóttir prestur og æskulýðsfulltrúi flutti skýrslu um æskulýðsstarfið þ.á.m. landsmóti Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar sem haldið var á vegum Selfosskirkju. Þá sagði hún frá foreldramorgnum, sunnudagaskóla, kirkjuskóla, samstarfi við grunnskóla, lífsleikni í framhaldsskólum, aðventu heimsóknum og leiðtogaskóla. Þá þakkaði hún gott samstarf.

d)     Edit Molnár kórstjóri sagði frá barna- og unglingakórastarfinu en hún hefir nú stjórnað barnakórastarfinu í 6 og unglingakórastarfinu síðustu 4 árin. Hún sagði m.a. frá tónleikaröð sem samanstóð af fjórum tónleikum í haust og bar nafnið „Franz Liszt 200 ára“, en komið var m.a. fram í Salnum í Kópavogi og Selfosskirkju. Kórinn hefir fengið 5 sinnum styrk frá Menningarráði Suðurlands, en síðast kom Garðar Thor Cortes fram með kórnum. Fyrirhugað er sunnlenskt barnakóramót 17. mars n.k. . Þá þakkaði Edit fyrir allan stuðning í gegnum árin.
Fundarstjóri þakkaði fyrir skýrslurnar og gaf orðið laust. 
Eygló Gunnarsdóttir djákni þakkaði fyrir góða samvinnu á liðnum árum.
Hafsteinn Þorvaldsson þakkaði fyrir kirkjustarfið og sérstaklega fyrir tenginu kirkjunnar við ungmenna og æskulýðstarfið í bænum og héraðinu.

2.      Guðmundur Búason gjaldkeri flutti síðan reikninga ársins 2011.
Rekstrarreikningur Selfosskirkju : Tekjur 38.527.586,-kr. Gjöld :  37.478.463,-kr. 
Tekjuafgangur með fjármunatekjum 1.096.724,-kr.
Efnahagsreikningur Skuldir og eigið fé 324.528.502,-kr.

Hjálparsjóður SelfosskirkjuTekjur 288.473,-kr.,   Gjöld 157.660,-kr., Tekjuafgangur 195.287,-kr.
      Eignir hjálparsjóðs – bankainnistæður  3.631.234,-kr.

Tónlistar og menningarsjóður Selfosskirkju.   Tekjur: Stofnframlag frá Selfosskirkju 250.000,-kr. Gjöld 75.000,-kr. Tekjuafgangur 175.000,-kr.

Kirkjugarður Selfosskirkju. Rekstrarreikningur: Tekjur 7.978.336,-. Gjöld 11.502.024,-kr.
Gjöld umfram tekjur: 3.263.185,-kr. Framkvæmdakostnaður er 3.200.000,-kr. vegna útiframkvæmda við kirkju.
Efnahagsreikningur kirkjugarðs: Eignir 11.898.208,-kr. 

Þá lagði Guðmundur fram fjárhagsáætlanir kirkju, kirkjugarðs og hjálparsjóðs fyrir árið 2012.

Reikningarnir voru samþykktir samhljóða. Þeir eru áritaðir af sóknarnefnd og skoðunarmönnum.

3.      Eysteinn Ó. Jónasson formaður flutti skýrslu um starfsemi héraðsnefndar og rakti ýmis mál frá héraðsfundi Suðurprófastsdæmis á Kirkjubæjarklaustri 26. mars 2011. Fundargerð þessa héraðsfundar lá frammi fjölfölduð á aðalsafnaðarfundinum. Fulltrúar Selfosssóknar á héraðsfundi voru Eysteinn Ó. Jónasson, María Kjartansdóttir, sr. Óskar H. Óskarsson og Sigríður Bergsteinsdóttir.

4.      Kosning í sóknarnefnd:

   A) Einn aðalmaður til 3ja ára í stað Sigríðar Bergsteinsdóttur. Tilnefning kom um Höllu Dröfn Jónsdóttur. Ekki komu fleiri tillögur og var hún því sjálfkjörin.

  B) Kosning fjögurra aðalmanna til 1 árs.   Eftirfarandi aðalmenn gefa kost á sér áfram: Eysteinn Ó. Jónasson, Sigurjón Erlingsson, Þórður Stefánsson og Erla Rúna Kristjánsdóttir. Fleiri tilnefningar komu ekki og voru þau því sjálfkjörin.

  C) Sigríður Bergsteinsdóttir var síðan sjálfkjörinn varamaður.

   D) Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnir, þau Kristín Pétursdóttir og Guðmundur Theodórsson. Varamenn þeirra voru einnig endurkjörnir þeir Halldór Magnússon og Leifur Guðmundsson. 

5.      Önnur mál: 
Kjartan Björnsson flutti þakkir fyrir gott samstarf kirkju og skóla. Hann taldi að utanhússlýsing kirkjunnar mætti vera meiri þá hvatti hann til þess að teknar væru myndir af kirkjunni, umhverfi hennar og starfinu.
Guðmundur Búason ræddi um viðhald kirkjunnar. Þar nefndi hann m.a. leka sem kemur frá bakhlið turns inn í nýju tengibygginguna og þarfnast viðgerðar. Lekinn er vafalaust röskun sem varð í jarðskjálftanum á sínum tíma. Viðgerð verður að framkvæma. Guðmundur nefndi fleiri þætti í viðhaldi s.s. þakmálningu sem fresta verður á þessu ári.
Róbert Guðmundsson í Hveragerði ræddi um nýlega afgreitt útboð á umhirðu og slætti kirkju og kirkjugarðslóðar Selfosskirkju og kvaðst hafa kynnt garðaþjónustu sína. Nefndi hann lágar tölur í þeirri vinnu.
Eysteinn Ó. Jónasson bað Maríu Kjartansdóttur, sem nú lýkur löngu starfi í sóknarnefnd – eða um 30 ár,  að taka við blómvendi frá kirkju og samstarfsfólki með þakklæti fyrir langt og gott starf. 
María Kjartansdóttir flutti nokkur þakkarorð.
Sr. Óskar H. Óskarsson þakkaði starfsfólki kirkjunnar og öllu því fólki sem kemur í kirkjuna í ýmsum erindum fyrir gott starf. Þar nefndi hann sérstaklega Maríu Kjartansdóttur, Erlu Rúnu Kristjánsdóttur, Halldór Magnússon, Eygló Gunnarsdóttur o.fl.
Sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson bauð Höllu Dröfn sérstaklega velkomna í sóknarnefnd og þakkaði öllum fyrir gott starf.
Grímur Hergeirsson fundarstjóri flutti Maríu þakkir og bauð Höllu Dröfn velkomna. 
Eysteinn þakkaði fyrir góðan fund. Grímur sleit síðan fundi.

Fundarmenn voru um 55 .    Fundi slitið kl. rúmlega 15 .               

Fundarritari var Sigurjón Erlingsson.
 

4. fundur sóknarnefndar 2012 haldinn í rislofti safnaðarheimils þriðjudaginn 6. mars 2012. 
Hófst kl. 1800.

Eysteinn Ó. Jónasson setti fund. Fundarefni er verkaskipting sóknarnefndar og aðrar skyldugar kosningar eftir aðalsafnaðarfund.

1.      Formaður var kjörinn samhljóða Eysteinn Ó. Jónasson. 1. varaormaður var kjörinn Björn Gíslason og 2. varaormaður Bára Gísladóttir. Ritari var kjörinn Sigurjón Erlingsson og vararitari Halla Dröfn Jónsdóttir (nýr fulltrúi í sóknarnefnd EÓJ) . Gjaldkeri var kjörinn Guðmundur Búason. Safnaðarfulltrúi var kjörinn Þórður Stefánsson, Erla Rúna Kristjánsdóttir varamaður hans. Þessar kosningar voru allar samhljóða. Kjör varamanna frá 22. mars 2011 er áfram í gildi.

2.      Árshátíð kirkjukórsins er fyrirhuguð 17. mars nk. Samþykkt að kirkjan bjóði starfsfólki Selfosskirkju til þessarar árshátíðar.

3.     Lögð var fram tillaga að útboði á þakmálningu sem þeir gerðu, Gunnþór (kirkjuvörður) og Sigurjón Erlingsson, ásamt kostnaðaráætlun frá Verkfræðistofu Suðurlands. Þessu verki verði frestað.

Fundi slitið kl. 1845

Undir fundargerð rituðu eftirfarandi:   Eysteinn Ó. Jónasson, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Guðmundur Búason, Grímur Hergeirsson, Bára Kr. Gísladóttir, Halla Dröfn Jónsdóttir auk fundarritara Sigurjóns Erlingssonar.
  

5. fundur sóknarnefndar 1012 haldinn 20 mars í rislofti safnaðarheimilis. 
Hófst kl. 1700

1.    Eysteinn formaður setti fund og lagði fram nýútkomið fréttabréf Selfosskirkju : „Kirkjufréttir útg. í mars. Þá lagði hann fram nýja skrá yfir sóknarnefndarmenn Selfosskirkju, varamenn og aðra starfsmenn kirkjunnar ásamt heimilisföngum, síma og netföngum.

2.    Þá lagði Eysteinn fram bréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar 14/3 2012 þar sem þökkuð er velvild og stuðningur og sagt frá ýmsu í hjálparstarfinu.

3.    Þá lagði Eysteinn fram bréf til Héraðssjóðs Suðurprófastdæmis b.t. Halldóru Þorvarðardóttur prófasts. Bréfið er undirritað af Eysteini ásamt sr. Kristni Ágústi og sr. Óskari. Sótt er um styrk vegna verkefna og þjónustu prests – Ninnu Sifjar við framhaldsskóla - að upphæð 1. millj. kr.

4.    Eysteinn kynnti bréf sem hann sendi Viðlagatryggingu fh. sóknarnefndar þar sem óskað er samstarfs vegna leka á turni kirkjunnar o.fl. sem vafalaust er afleiðing af jarðskjálftanum 2008. Skoðunarmenn komu í gær 19. mars og er að vænta bréfs frá þeim.

5.    Samþykkt að veitingar verði í safnaðarheimili að lokinni páskamessu.

6.    Samþykkt að kjósa 4 úr sóknarnefnd til að yfirfara rekstrarliði kirkjunnar. Tilnefndir voru: Guðmundur Búason, Eysteinn Ó. Jónasson, Grímur Hergeirsson og Halla Dröfn Jónsdóttir.

7.    Samþykkt að greiða styrk vegna æskulýðdagsins í Selfosskirkju.

8.    Samþykkt að fela Eysteini að flytja kirkjukórnum þakkir fyrir að bjóða sóknarnefnd að taka þátt í ársháðíð kórsins.

9.    Sr. Óskar H. Óskarsson setti fram hugmyndir um tónlistar og menningarstarf í Selfosskirkju

Fundi slitið kl. 1800 og undir fundargerð skrifuðu: Óskar Hafsteinn Óskarsson, Eysteinn Ó. Jónasson, Halla Dröfn Jónsdóttir,  Guðmundur Búason, Bára Kr. Gísladóttir, Ninna Sif Svavarsdóttir, Erla Rúna Kristjánsdóttir, Þórður Stefánsson og fundarritarinn Sigurjón Erlingsson.
------------------------------------------------------------------------------------ 
 
Eftirfarandi kort sendu Kaþólikkar okkur fyrir veitta aðstöðu í okkar kirkju fyrir þeirra athafnir í okkar kirkju.

-------------------------------------------------------------------------------
6. fundur sóknarnefndar 2012, 17. apríl í rislofti safnaðarheimilis. Hófst kl. 17

Eysteinn setti fund.

1.    Hann sagði frá svari frá Héraðssjóði Suðurprófastsdæmis vegna óskar sóknarnefndar sbr. 3. lið síðustu fundargerðar um styrk. Héraðssjóður hefir samþykkt kr. 800 þús. vegna þessa.

2.    Þá sagði Eysteinn frá starfi þeirrar nefndar sem kosin var á síðasta fundi, sbr. 6. lið síðustu fundargerðar, til að yfirfara rekstrarliði kirkjunnar. Hann lagði fram minnisblað : „Hugleiðingar um sparnað í Selfosskirkju“. Umræður voru um fjölmarga kostnaðarliði í rekstrinum. Samþykkt að ræða þessar hugmyndir frekar í samráði við prestana.

Fundi slitið kl. 1845

Undir fundargerð skrifuðu : Eysteinn Ó. Jónasson, Halla Dröfn Jónsdóttir, Guðmundur Búason, Björn Ingi Gíslason, Þórður Stefánsson, Grímur Hergeirsson, Bára Kr. Gísladóttir, Erla Rúna Kristjánsdóttir og fundarritari Sigurjón Erlingsson.