Organisti Selfosskirkju.

Núverandi organisti Selfosskirkju er Jörg E. Sondermann sem tók við af Glúmi Gylfasyni á haustdögum 2006.

Núverandi organisti Selfosskirkju er Jörg E. Sondermann sem tók við af Glúmi Gylfasyni á haustdögum 2006.

Jörg E Sondedrmann er fæddur 1957 í Þýskalandi. Hann stundaði kirkjutónlistarnám í Herford og Ddortmund og lauk þaðan A-prófi (lokapróf) 1980.   Eftir það fór hann til Hamborgar og lauk einleikaraprófi (konsertprófi) á orgel 1982. 

Árin 1975 – 1997 starfaði hann sem organisti og kórstjóri í Westfalen og frá árinu 1985 stóð hann þar fyrir tónlistarhátíð er nefnist „Westfaelische Bach-Tage“. 

Jörg hefur haldið tónleika víða um lönd, m.a. í Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi, Sviss, Austurríki, Póllandi og Finnlandi. Í efnisvali sínu hefur hann lagt mesta áherslu á verk Johanns Sebastians Bachs auk verka núlifandi tónskálda.

Jörg E. Sondermann fluttist til Íslands haustið 1997 og var til 2006 organisti í Hveragerðis- og Kotstrandarsóknum. Hann starfar nú sem organisti við Selfosskirkju. Hann kenndi orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar 1999 – 2006 og kennir frá 1998 í Árnessýslu.

 
 
Glúmur Gylfason var organisti við Selfosskirkju frá árinu 1972 - september 2006.

Glúmur Gylfason -curriculum-

Tónlistarnám:

1955 - 1959 í einkakennslu
1959 - 1962 Tónlistarskólinn í Rvk.
1966 - 1969 Orgelnám á Selfossi í einkakennslu
1969 - 1970 Tónskóli Þjóðkirkjunnar - alm. nám í kirkjutónlistarfræðum
1970 - 1971 Kennaraháskóli Danmerkur, Kbh:  Orgel, söngur og alm,
tónlistargreinar.
1971 - 1977 Tónskóli Þjóðkirkjunnar - kirkjutónlistarfræði og orgelleikur.
Lokið með sjálfstæðum orgeltónleikum á Selfossi 1977

1974 - 1977 Tónlistarskóli Árnessýslu. Lauk klassískri hljómfræði og nam
kontrapunkt og byrjunaratriði tónsmíða.
1986 - 1987 Styrkþegi ítalska utanríkisráðuneytisins til orgelnáms í Róm.
 

Tónlistarstörf:


Frá 1972 Organisti Selfosskirkju.
Frá 1980 Kennari við Tónlistarskóla Árnessýslu.
Í fyrstu stjórn Ísleifsreglunnar,  1981,  og unnið þar að útgáfu sígilds kirkjusöngs, "gregorssöngs".
1982   Íslenskaði "Kennslubók í kórstjórn", útg. af Söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar.
1989   Settur Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar.

Þess má geta að orgel Selfosskirkju sem smíðað var af Steinmeyer & Co, 1964 og var þá tvö hljómborð, HW, SW og Pedal, var stækkað, endurnýjað og hljómstillt af Bruno Christensen & Sönner1991 upp í 3 hljómborð og fótspil: RP = I;  HV = II og SV = III
Auk venjulegra tenginga er 4' tengi frá RP í Ped.  Geymsluminni 16x16 = 256 og fast minni Crescendo
Eftir þessar breytingar var orgelið orðið eitt af öflugri orgelum landsins og var strax í upphafi ákveðið að við vígslu þess svo og vegna stækkunar kirkju, byggingar safnaðarheimilis og turns að bjóða organistum Árnesprófastsdæmis að þeir léki nokkuð við vígsluna hver og einn.  Þetta var upphafið af svökölluðum "Septembertónleikum" sem hafa skipað fastan sess í kirkjunni síðan.  Hvern þriðjudag í september hafa hinir ýmsu organistar, erlendir sem innlendir ásamt fjölda annarra tónlistarmanna komið þar fram og undantekningarlaust hafa organistarnir lofað hljóðfærið hásterkt.  Vegna sérstaks skilnings og velvilja prófasta Árnesprófastsdæmis, Árborgar og sóknarnefndar Selfosskirkju hefur verið hægt að bjóða þeim sem áhuga hafa haft, á ókeypis aðgangi að tónleikum hingað til og hafa menn oft lagt á sig löng ferðalög til þess að geta notið þess sem í boði hefur verið hverju sinni.